1
Fólk

Selja sveitasetur á höfuðborgarsvæðinu

2
Innlent

Glæpamenn þykjast vera íslenska lögreglan

3
Fólk

„Þetta er líklega allt að fara að enda í tárum“

4
Minning

Steingrímur Ari Arason er látinn

5
Minning

Áslaug Kristjánsdóttir er fallin frá

6
Innlent

Sindri Freyr týndur í Taílandi

7
Innlent

Tíu erlendum föngum sparkað úr landi

8
Fólk

„Ég hefði viljað byrja miklu fyrr á leiðréttingarferlinu“

9
Fólk

Huggulegt Sigvaldahús til sölu

10
Innlent

Ingileif varpar ljósi á hatur í tilefni Pride-mánaðar

Til baka

Páll með Margréti

margrét friðriksdóttir

Bloggarinn Páll Vilhjálmsson, er orðinn einn af sérmerktum höfundum vefmiðilsins Fréttarinnar.is, sem Margrét Friðriksdóttir heldur úti.

Páll, sem er þekktur fyrir baráttu sína fyrir óheft og óheflað málfrelsi um þá sem gagnrýna eða fjalla um útgerðarrisann Samherja, fjallar meðal annars um „stolta fánabera“ á Austurvelli í mótmælum þjóðernissinna um helgina, þar sem Margrét hélt einmitt ræðu.

Í ræðu sinni kynnti Margrét vefmiðilinn sinn og sagði að „ofbeldisfólk“ hefði sakað Fréttina.is um „skáldskap og falsfréttamennsku“ og að vera „einkablogg Margrétar Friðriks“. „Staðreyndin er sú að fjölmargir höfundar eru fastapennar á Fréttinni. Fastir pennar eru meðal annars reyndir blaðamenn og fjölmiðlafræðingar,“ sagði hún.

Páll Vilhjálmsson, sem starfað hefur sem kennari í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, titlar sig einmitt blaðamann. Fastar greinar Páls á Fréttinni birtast hins vegar líka á bloggsíðu hans. Því er ljóst að bæði Staksteinar Morgunblaðsins, í ritstjórn Davíðs Oddssonar, og Fréttin.is sameinast um reglulegar endurbirtingar á efni hans.

Meðal annarra höfunda á Fréttinni, sem eru merkisberar ágætis íslensku þjóðarinnar, eru Hallur Hallsson, Haukur Hauksson, blaðamaður og Rússlandsvinur, Erna Ýr Öldudóttir og Eldur Smári.

Þá sagði Margét að gagnrýnendur Fréttarinnar.is hefðu ekki geta bent á „eina falsfrétt“ á miðilnum. Sjálf er hún komin með nafnlausa staðfestingu á hópnauðgunarmáli sem hún fjallaði um á dögunum og tengdi níu hælisleitendur við, en lögreglan kannaðist ekki við, þrátt fyrir heimildir Fréttarinnar þess efnis.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fundu níu mismunandi vopn hjá Lárusi
Innlent

Fundu níu mismunandi vopn hjá Lárusi

Var einnig með glás af fíkniefnum og lyfjum
Safna fyrir fjöl­skyldu Ingu Daggar
Innlent

Safna fyrir fjöl­skyldu Ingu Daggar

Áhorfendur mega ekki mæta með vatnsflöskur á HM
Sport

Áhorfendur mega ekki mæta með vatnsflöskur á HM

ÖBÍ fer í mál við Reykjavík
Innlent

ÖBÍ fer í mál við Reykjavík

Margrét Friðriksdóttir dæmd í héraði
Innlent

Margrét Friðriksdóttir dæmd í héraði

Unglingur skotinn til bana eftir útskriftarathöfn
Heimur

Unglingur skotinn til bana eftir útskriftarathöfn

Bondi-hetjan ákærð fyrir líkamsárás
Heimur

Bondi-hetjan ákærð fyrir líkamsárás

Sýnir íslensk veiðisvæði í nýju ljósi
Menning

Sýnir íslensk veiðisvæði í nýju ljósi

Huggulegt Sigvaldahús til sölu
Myndir
Fólk

Huggulegt Sigvaldahús til sölu

Áslaug Kristjánsdóttir er fallin frá
Minning

Áslaug Kristjánsdóttir er fallin frá

„Ég hefði viljað byrja miklu fyrr á leiðréttingarferlinu“
Myndband
Fólk

„Ég hefði viljað byrja miklu fyrr á leiðréttingarferlinu“

Slúður

Loka auglýsingu