1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

3
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

8
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

9
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

10
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Til baka

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Brotin voru framin á tímabilinu frá desember 2024 til júlí 2026

Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness sá um málið
Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið dæmdur í 14 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir 88 þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar. Brotin voru framin á tímabilinu frá desember 2024 til júlí 2026 og nam samanlagt verðmæti munanna rúmlega 3,5 milljónum króna.

Maðurinn játaði fyrir dómi öll brotin sem ákæruvaldið hélt til streitu. Þjófnaðirnir voru fjölbreyttir en stór hluti þeirra sneri að matvöru úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Meðal þess sem maðurinn stal voru mikið magn af kjúklingabringum, nautakjöti, lambakjöti, ostum, kaffi, orkudrykkjum og öðrum matvörum.

Þá stal hann einnig raftækjum, ilmvötnum, fatnaði, verkfærum, húðvörum, vítamínum og Lego-kössum. Í einu tilviki stal hann tveimur jökkum að verðmæti 196 þúsund króna og í öðru húðvörum að verðmæti rúmlega 238 þúsund króna. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt að stela verkfærum að verðmæti rúmlega 159 þúsund króna en starfsmenn stöðvuðu hann áður en hann yfirgaf verslunina.

Maðurinn átti að baki nokkurn sakaferil og hafði áður meðal annars hlotið fangelsisdóma og verið sviptur ökurétti ævilangt. Með hluta brotanna rauf hann skilorð eldri dóms og var fimm mánaða skilorðsbundin fangelsisrefsing því tekin upp.

Við ákvörðun refsingar horfði dómurinn til greiðrar játningar mannsins en einnig til fjölda brotanna, þess hversu lengi þau stóðu yfir og heildarverðmætis þýfisins.

Niðurstaðan var 14 mánaða fangelsi. Manninum var jafnframt gert að greiða 800 þúsund krónur í málsvarnarlaun verjanda síns.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada
Innlent

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi
Innlent

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð
Myndir
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Fjórmenningarnir voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot
Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada
Innlent

Tvisvar gripinn með vafasöm vegabréf á leið til Kanada

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

Loka auglýsingu