
Sprengjuhótanir bárust nokkrum ríkisstofnunum og fyrirtækjum í tölvupósti í vikunni. Lögregla hefur metið hótanirnar og telur ekki þörf á frekari viðbrögðum að svo stöddu.
RÚV greinir frá þessu.
Meðal þeirra sem fengu hótanir voru dómsmálaráðuneytið og forsætisráðuneytið. Skilaboðin voru send á almenn netföng ráðuneytanna, skrifuð á einfaldri ensku og bárust frá sama netfangi.
Dómsmálaráðuneytinu barst hótunin á miðvikudagsmorgun. Farið var eftir viðeigandi verkferlum og sprengjusveit kölluð til vegna málsins. Að loknu mati var niðurstaðan sú að ekki væri þörf á frekari aðgerðum. Hótunin hafði ekki áhrif á starfsemi ráðuneytisins.
Sambærileg skilaboð bárust forsætisráðuneytinu og hafa fleiri ríkisstofnanir og fyrirtæki fengið áþekkar hótanir í vikunni.
Samkvæmt ríkislögreglustjóra eru slíkar hótanir metnar sérstaklega þegar þær berast, meðal annars af sprengjusérfræðingum sérsveitarinnar. Að svo stöddu telur lögregla ekki ástæðu til frekari viðbragða vegna þeirra hótana sem borist hafa.
