1
Fólk

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

2
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

3
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

4
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

5
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

6
Heimur

Handtekinn á flugvellinum á Tenerife eftir átta mánaða leit

7
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

8
Heimur

Robbie Williams útskýrir hvíta efnið í beinni

9
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

10
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Til baka

Réðst á stjúpdóttur sína með pitsuskera

Tók hana einnig hálstaki og hristi hana

Héraðsdómur Norðurlands vestra
Héraðsdómur Norðurlands vestraMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Skjáskot/ja.is

Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt konu á sextugsaldri í tveggja mánaða fangelsi fyrir brot í nánu sambandi og líkamsárás gegn dóttur sambýlismanns síns og annarri konu. Refsingin var skilorðsbundin til tveggja ára.

Samkvæmt dómnum áttu brotin sér stað á heimili konunnar dagana 30. júní til 2. júlí árið 2025. Konan var ákærð fyrir að hafa skapað viðvarandi ógnarástand gagnvart stjúpdóttur sambýlismanns síns með hótunum, skömmum og ofbeldi.

Í ákæru kom fram að konan hefði meðal annars kallað brotaþola ítrekað niðrandi nöfnum, þar á meðal „fucking bitch“, elt hana um heimilið og áreitt hana með ókvæðisorðum. Daginn eftir hafi hún kastað síma sem hæfði brotaþola í magann, kastað pitsakassa í hana og tekið hana hálstaki áður en hún hristi hana.

Þegar önnur kona reyndi að ganga á milli hafi ákærða ýtt eða slegið til hennar. Brotaþolarnir flúðu í kjölfarið út úr íbúðinni en ákærða elti þær, braut rúðu í forstofuhurð og kastaði stórum pitsuskera í átt að þeim þegar þær voru komnar út á bílaplan og fengu þær báðar marblett.

Að morgni 2. júlí reyndi konan jafnframt að brjóta sér leið inn í stofu íbúðarinnar þar sem brotaþolarnir höfðu læst sig inni og reyndi að veitast að annarri þeirra í gegnum rifur á hurð.

Ákærða mætti ekki fyrir dóm þegar málið var þingfest og boðaði engin forföll. Var því litið svo á að hún viðurkenndi háttsemina. Dómurinn taldi sök hennar sannaða og dæmdi hana til tveggja mánaða fangelsis, skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var henni gert að greiða 60 þúsund krónur í sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

Varað er við gríðarlegum hita á vinsælum ferðamannastöðum Íslendinga
William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn
Fólk

15 matvæli sem geta lækkað kortisólmagn

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu