1
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

2
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

3
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

4
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

5
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

6
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

7
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

8
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

9
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

10
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Til baka

Rússar fordæma árás Bandaríkjanna á Venesúela

„Hugmyndafræðilegur fjandskapur hefur sigrað praktíska samskiptaþróun“

Félagarnir Trump og Putin.
Trump og PútínTrump og Pútín á góðri stundu

Utanríkisráðuneyti Rússlands sendi frá sér fjórar aðskildar yfirlýsingar vegna hernaðaraðgerða Washington í Venesúela í fyrradag og fordæmdi þær sem „vopnaða árás Bandaríkjanna gegn Venesúela“.

„Hugmyndafræðilegur fjandskapur hefur sigrað praktíska samskiptaþróun,“ sagði ráðuneytið í fyrstu yfirlýsingu sinni. Í annarri yfirlýsingu, sem birt var tveimur klukkustundum síðar, fjallaði Moskva um fyrstu fréttir af því að Maduro-hjónin hefðu verið numin á brott og sagði það „óásættanlegt brot á fullveldi sjálfstæðs ríkis, en virðing fyrir fullveldi er grundvallarregla alþjóðalaga“.

Nokkrum klukkustundum síðar greindi Moskva frá því að Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefði átt símtal við varaforseta Venesúela, Delcy Rodríguez, þar sem þau ítrekuðu „sameiginlega skuldbindingu sína til að efla víðtækt stefnumótandi samstarf Rússlands og Venesúela“.

Um það bil tuttugu mínútum síðar brást ráðuneytið við staðfestingu þess að Maduro-hjónin væru nú í haldi Bandaríkjanna og sagði: „Við skorum eindregið á bandarísk stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína og láta löglega kjörinn forseta fullvalda ríkis og eiginkonu hans lausa.“

Viðbrögð Kænugarðs

Í færslu á X sagði Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, að „stjórn Maduro“ hefði brotið gegn mannréttindum og „rétti þjóða til að lifa frjáls“ og lagði áherslu á að Kænugarður viðurkenndi ekki lögmæti Maduro sem forseta.

„Íbúar Venesúela verða að fá tækifæri til eðlilegs lífs, öryggis, velmegunar og mannlegrar reisnar,“ sagði Sybiha og bætti við að Úkraína styddi „frekari þróun mála í samræmi við meginreglur alþjóðalaga“.

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, tjáði sig um atburðina í Venesúela í gær þar sem hann sagðist vona að Vladimir Pútín yrði tekinn næst af Bandaríkjamönnum. Hann fjallaði einnig um Venesúela á X-inu í ágúst 2024, þegar hann fordæmdi fréttir af því að rússneskir málaliðar hefðu styrkt stjórnarher Venesúela. „Þetta er skýrt dæmi um blygðunarlausa íhlutun Rússlands í málefni annarra ríkja,“ skrifaði Zelensky þá.

Viðbrögð Evrópu

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Kaja Kallas, æðsti fulltrúi ESB í utanríkis- og öryggismálum, notuðu svipað orðalag í viðbrögðum sínum við árás Bandaríkjanna á Venesúela.

Báðar lýstu yfir stuðningi við „friðsamleg valdaskipti“ í kjölfar handtöku Maduro og lögðu áherslu á að virða bæri alþjóðalög. „ESB hefur ítrekað lýst því yfir að Nicolás Maduro skorti lögmæti,“ bætti Kallas við.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Loka auglýsingu