Einbýlishús við Grjótasel 21 í Reykjavík hefur verið sett á sölu fyrir 180 milljónir króna. Húsið er 277 fermetrar að stærð, með bílskúr, og stendur á stórri og gróðursælli endalóð í rólegri botlangagötu.
Húsið var reist árið 1979 og er hannað og byggt af Sigurði Hákoni Thoroddsen arkitekt. Alrými eignarinnar er bjart, með gluggum á alla vegu og góðri lofthæð. Þaðan er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir.
Húsið var upphaflega teiknað með fimm svefnherbergjum en tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt stórt herbergi. Samkvæmt sölulýsingu er auðvelt að breyta því aftur í tvö herbergi.
Garðurinn er stór og gróinn og þar er meðal annars rúmgóð og skjólsæl viðarverönd sem snýr til suðurs.
Til viðbótar við skráða 277 fermetra eignarinnar er um 25 fermetra óskráð og óinnréttað rými sem býður upp á frekari nýtingarmöguleika.
Grjótasel 21 er skammt frá skólum, leikskólum og íþróttasvæði ÍR auk þess sem stutt er í verslun og þjónustu í Mjódd.

