Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í Laugardal hefur verið sett á sölu á 175 milljónir króna en það er við Efstasund 52
Húsið, sem var byggt árið 1957, er samtals 222,4 fermetrar að stærð og hefur verið nýtt innan fjölskyldu sem tvær íbúðir, en auðvelt er að sameina það í eina heildstæða íbúð.
Samkvæmt skráningu fasteignar er neðri hæð hússins 94,5 fermetrar, efri hæð 95,9 fermetrar og bílskúr 32 fermetrar. Bílskúrinn hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð ásamt geymslu og er nú í útleigu.
Eignin státar af stórum og skjólsælum bakgarði með heitum potti, sem býður upp á góð útivistarskilyrði. Þá er innkeyrsla og göngustígar við húsið munstursteyptir og steinlagðir, auk þess sem hitakerfi er bæði í innkeyrslu og í kringum húsið.
Staðsetningin er talin afar eftirsótt, en húsið er í nálægð við skóla, þjónustu og útivistarsvæði Laugardalsins, sem nýtur mikilla vinsælda meðal íbúa borgarinnar.
Eignin hentar jafnt stórum fjölskyldum sem og þeim sem vilja hafa möguleika á aukatekjum af útleigu.


Komment