Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Svarta krúttbomban á Selfossi kostar sitt

Húsið var reist árið 1959

Þórsmörk 7
Þórsmörk 7

Þriggja herbergja einbýlishús á Selfossi hefur verið sett á sölu fyrir 63,9 milljónir króna. Um er að ræða 69,4 fermetra timburhús sem byggt var árið 1959 og hefur verið mikið endurnýjað.

Húsið er klætt bárujárni að utan og er staðsett skammt frá helstu þjónustu á Selfossi. Verslanir, sundlaug og miðbær bæjarins eru meðal annars í göngufæri frá eigninni.

Í húsinu eru tvö svefn­herbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og rúmgóð forstofa. Forstofan er með kalk­sparsli á gólfi en í stofu og svefn­herbergjum hefur verið lagt nýlegt harðparket.

Stofan er björt og rúmgóð. Í eldhúsinu er grálökkuð innrétting ásamt ofni og hellu­borði frá Hisense. Þar er einnig frístandandi ísskápur og aðstaða fyrir borðkrók.

Hjóna­herbergið er rúmgott og þar eru tveir fata­skápar. Annað svefn­herbergi hússins er minna og einnig með nýlegu harðparketi.

Baðherbergið er rúmgott og þar er bæði sturta og baðkar. Þar er jafnframt upphengt salerni og innrétting.

Fyrir framan húsið er verönd þar sem komið hefur verið fyrir rafmagns­heitapotti. Potturinn er búinn sjálf­virkri Danfoss-stýringu.

Ásett verð eignarinnar er 63,9 milljónir króna, sem jafn­gildir rúmlega 920 þúsund krónum á fermetra miðað við skráða stærð hússins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“