
Vigfús Kristinn Vigfússon, húsasmíðameistari, kaupmaður og einn af athafnamönnum Ólafsvíkur á síðustu öld, er látinn á 102. aldursári.
Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Vigfús fæddist á Hellissandi 14. desember 1924 og hóf ungur störf við húsasmíðar. Á löngum starfsferli kom hann að uppbyggingu fjölmargra mannvirkja í Ólafsvík og rak meðal annars verslun, smíðaverkstæði og steypustöð. Hann þótti framsýnn frumkvöðull og hafði mikil áhrif á þróun atvinnulífs og byggðar í heimabæ sínum.
Auk starfa sinna sinnti Vigfús fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir samfélagið, meðal annars í sveitarstjórn, hafnarnefnd og sóknarnefnd. Hann var einnig virkur í tónlistarlífi bæjarins, söng áratugum saman í Kór Ólafsvíkurkirkju og með söngkvartettinum Hinir síungu.
Eiginkona hans var Herdís Hervinsdóttir, sem lést árið 2015 en þau eignuðust sex börn saman.