1
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

2
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

3
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

4
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

5
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

6
Innlent

Veðurskipti framundan

7
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

8
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

9
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

10
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Til baka

Varað við tínslu kræklings úr fjörum

Viðvörunin nær til allra vinsælla staða þar sem fólk tínir villtan krækling

Kræklingur
Kræklingur
Mynd: Benutzer:Darkone/Wikipedia

Matvælastofnun (MAST) varar almenning við því að tína og neyta kræklinga úr fjörum sunnan- og suðvestanlands eftir að eiturþörungar greindust í miklu magni í sjósýnum í árlegum vorleiðangri hjá Hafrannsóknastofnun.

Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun fundust eiturþörungarnir bæði í Faxaflóa og fyrir sunnan landið. Tíðarfarið í maí hafi verið hagstætt, sérstaklega á suðvesturhluta landsins, og því sé ástæða til að ætla að aðstæður fyrir vöxt eiturþörunga séu víða góðar.

Viðvörunin nær til allra vinsælla staða þar sem fólk tínir villtan krækling, þar á meðal í Hvalfirði. MAST bendir á að regluleg vöktun á eiturþörungum í sjó takmarkist við virk ræktunarsvæði skelfisks og því sé ekki hægt að tryggja öryggi villts kræklinga sem tíndur er utan þeirra svæða.

Svifþörungar eru mikilvægur hluti af fæðukeðju hafsins, en sumar tegundir þeirra geta myndað eiturefni sem eru skaðleg bæði mönnum og dýrum. Þótt skelfiskur verði ekki sjálfur fyrir áhrifum af eitrinu getur hann safnað því í vefi sína með neyslu eiturþörunga. Neysla slíks skelfisks getur valdið alvarlegum veikindum hjá fólki.

MAST bendir á að vöxtur eiturþörunga og myndun eiturefna sé ófyrirsjáanleg. Hættan geti komið upp hvenær sem er á gróðurtímabili þörunga, sem að jafnaði stendur frá marsmánuði og fram á vetur.

Niðurstöður vöktunar á eiturþörungum og þörungaeitri í skel á ræktunarsvæðum eru aðgengilegar á vef MAST. Þá má einnig nálgast frekari upplýsingar um eiturþörunga og þörungaeitur hjá Hafrannsóknastofnun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“
Fólk

„Klíkuskapur er kjarnamein íslensku þjóðarinnar“

Valur Gunnarsson veltir fyrir sér klíkuskap landans
Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum
Heimur

Ryan Adams aflýsir Evróputúrnum

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju
Heimur

Rauð viðvörun á Spáni vegna gríðarlegrar hitabylgju

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans
Heimur

William Shatner greindist með krabbamein á sama tíma og dóttir hans

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp
Heimur

Úkraínuher sprengdi „Amazon Rússlands“ í loft upp

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér
Fólk

Landsliðsmaður í knattspyrnu fjölgar sér

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Sex manna fjölskylda brennd til bana
Myndband
Heimur

Sex manna fjölskylda brennd til bana

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum
Fólk

Kerfislægur þrýstingur í eitruðum fjölskyldum

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin
Heimur

Jamaíska fegurðardrottningin LaToya Malcolm er látin

Innlent

Veðurskipti framundan
Innlent

Veðurskipti framundan

Breytingar taka við á fimmtudag
Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn
Innlent

Maðurinn sem féll í Ölfusá er dáinn

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi
Innlent

Sýklalyfjaónæmi fer vaxandi á Íslandi

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands
Innlent

Frakkland lýsir yfir stuðningi við ESB-viðræður Íslands

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“
Innlent

„Læknar fá starfsleyfissviptingu fyrir það sem aðrir fá allt að 16 ára fangelsi fyrir“

Draumafríið á Íslandi varð að martröð
Innlent

Draumafríið á Íslandi varð að martröð

Loka auglýsingu