1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

4
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

5
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

8
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

9
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

10
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

Til baka

Grindvíkingum mun standa til boða að kaupa húsnæði sitt til baka

Skólahald og endurkaup fasteigna framundan

Grindavík
Næstu skref í endurreisn Grindavíkurnýtt áhættumat
Mynd: Shutterstock

Forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík eru nú taldar ásættanlegar, að því gefnu að öryggisráðstafanir séu virkar. Þetta eru helstu niðurstöður úr nýjum hluta endurskoðas áhættumats fyrir bæinn sem ríkisstjórnin fjallaði um í gær og segir á vef forsætisráðuneytisins. Með þessu breytist fyrra mat stjórnvalda frá því í apríl og er nú stefnt að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa íbúðarhúsnæði sitt í bænum til baka.

Nýja áhættumatið bendir til þess að unnt sé að halda áhættu fyrir þá sem dvelja eða starfa í Grindavík innan sambærilegra marka og í öðrum byggðarlögum á Íslandi sem búa við langvarandi náttúruvá. Í apríl síðastliðnum var það mat ríkisstjórnarinnar að ekki væru forsendur til að hefja skólahald eða stuðla að aukinni búsetu barna í bænum, en stjórnvöld telja þær forsendur nú breyttar.

Ógnin áfram viðvarandi

Þrátt fyrir rýmri heimildir og jákvæðara mat er óvissunni vegna náttúruvárinnar ekki lokið. Í tilkynningu stjórnvalda kemur fram að aðstæður í Grindavík séu áfram sérstakar þar sem ógnin er viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið um kring, allt þar til goslokum hefur verið lýst yfir. Áfram verður fylgst náið með þróun mála og þess gætt að vöktun, viðvörunarkerfi og rýmingaráætlanir séu ávallt virkar. Ríkisstjórnin leggur sérstaka áherslu á að hagsmunir og velferð barna séu í fyrirrúmi við allar ákvarðanir um búsetu og skólahald.

Undirbúa endurkaup fasteigna

Niðurstöðurnar munu nýtast Grindavíkurbæ, ríkinu og öðrum hagsmunaaðilum sem grundvöllur að næstu skrefum við endurreisn bæjarins. Liður í því er að hefja markvisst og í áföngum undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum, kjósi þeir það.

Vinnan við endurskoðun áhættumatsins hefur staðið yfir undanfarna mánuði þar sem fjöldi sérfræðinga, hagaðila og íbúa komu að borðinu. Sjónum var sérstaklega beint að öryggi við daglega dvöl og hugsanlega rýmingu, samfelldu skólahaldi og öryggi húsnæðis.

Vinnu við heildstætt áhættumat verður haldið áfram og verður það endurskoðað reglulega. Niðurstöður þess hluta sem nú liggur fyrir verða kynntar nánar á íbúafundi í Grindavík í kvöld.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Samkvæmt mati Náttúrufræðistofnunar hefur svæðið hátt verndargildi
Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Loka auglýsingu