Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Svakalegasta lestrarkeppni landsins hafin

Hver verður „Svakalegasti lestrar­skóli landsins“ í ár?

Verðlaunahöfundarnir Blær og Eva Rún blása til Svakalegu lestrarkeppninnar
Verð­launa­höf­und­arnir Blær og Eva Rún blása til Svaka­legu lestr­ar­keppn­innar Mynd: Listveitan

Svakalega lestrar­keppnin hóf göngu sína í síðustu viku en yfir 100 skólar eru skráðir til leiks. Keppnin er lestrar­átak fyrir krakka í 1. - 7. bekk. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tíma­bilinu 15. sept til 6. okt.

Markmið keppninnar er að auka lestrar­ánægju barna. Í keppninni skrá skólar hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrar­skóli landsins ásamt því að fá glæsileg bóka­verðlaun en úrslit verða tilkynnt 15. október.

Svakalegur árangur

Það eru barnabóka­höfundarnir Blær Guðmunds­dóttir og Eva Rún Þorgeirs­dóttir sem standa að Svakalegu lestrar­keppninni en þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín. Í síðustu viku hlutu þær Barna­bóka­verðlaun Guðrúnar Helga­dóttur 2026 fyrir handritið að glænýrri barnabók sem ber heitið Bestu vinir.

Keppnin er fjár­mögnuð af menningar-, nýsköpunar- og háskóla­ráðuneytinu og er þetta annað árið í röð sem blásið er til hennar. Óhætt er að segja að um „svaka­legan“ árangur hafi verið að ræða á síðasta ári en þá lásu þátt­takendur samtals í 9,7 milljónir mínútna á einum mánuði. Það verður því spennandi að sjá hve margar mínútur verða lesnar í ár.

Hvetjum til lestrar!

Blær og Eva Rún segja í viðtali við menningar- nýsköpunar og háskólaráðunreytið að lestrar­keppnina hafa farið einstak­lega vel af stað og hvetja alla til að setja sér markmið og auka lestur á heimilinu. Þótt skóli barnsins sé ekki skráður í keppnina geta allir lestrar­hestar nálgast skráningar­blað á sogusmidjan.is og haldið utan um lestrar­mínútur sínar, fjöl­skyldunnar eða vina­hópsins. Markmiðið er fyrst og fremst að kveikja áhugann, færnin fylgir síðan með æfingunni.

„Foreldrar ættu endilega að hvetja börnin sín áfram í lestrinum,“ segja þær stöllur og deila hér nokkrum góðum ráðum:

  • Spjöllum saman um bækur! „Hvað heldur þú að gerist næst?“ Það eykur lesskilning.
  • Má bjóða þér lestur? Barnið getur lesið bók fyrir foreldri eða yngra systkini.
  • Lestrar­stund fyrir fjöl­skylduna eftir kvöldmat, þar sem allir setjast niður og lesa bók.
  • Fara saman á bókasafn! Það er mikilvægt að hafa gott úrval af bókum að velja úr. Það er líka gaman að heimsækja ný bókasöfn.
  • Hafið bækur sýnilegar og aðgengilegar, bæði heima fyrir og á ferð og flugi. Bók í töskunni eða hanska­hólfi getur komið sér vel þegar það þarf að bíða.
  • Sýnið gott fordæmi. Börn sem sjá fullorðna lesa upplifa lestur frekar sem sjálfsagðan og ánægju­legan hluta daglegs lífs.
  • Tengið bækur við upplifun: Lesið um dýr fyrir ferð í Húsdýra­garðinn, matargerð áður en þið bakið eða um staði sem fjöl­skyldan ætlar að heimsækja.
  • Skiptið um bók ef bókin vekur ekki áhuga barnsins. Það þarf ekki að klára allar bækur.
  • Hrósið barninu fyrir að lesa!
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag