1
Innlent

Skelfilegar aukaverkanir af nýju offitulyfi

2
Fólk

Stjórnarformaður Icelandair selur eitt dýrasta hús landsins

3
Innlent

Rétt tímasetning blóðþrýstingslyfja getur bjargað lífi

4
Innlent

Jóhannes leitar nýrra svara eftir eigin rangfærslur

5
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

6
Innlent

Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis

7
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

8
Innlent

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

9
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

10
Heimur

„Auðlindirnar tilheyra okkur hundrað prósent“

Til baka

Stal málverki við Barónsstíg og flúði lögreglu á stolnum bíl

Brotin voru framin á tímabilinu frá janúar til júní 2025

Lögreglumótorhjól
Lögreglumenn við störfMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað, þrjá nytjastuldi, umferðarlagabrot og brot gegn lögreglulögum.

Brotin voru framin á tímabilinu frá janúar til júní 2025.

Maðurinn var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa brotist inn í húsnæði við Barónsstíg í Reykjavík, ásamt öðrum, 8. janúar 2025 og stolið þaðan málverki að óþekktu verðmæti.

Í maí sama ár tók hann bifreið í Reykjavík í heimildarleysi og ók henni þrátt fyrir að vera sviptur ökurétti. Síðar sama dag ók hann bifreiðinni undir áhrifum fíkniefna og lyfja. Í blóðsýni mældist meðal annars metamfetamín. Hann sinnti ekki ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að stöðva aksturinn en lögregla hafði að lokum afskipti af honum í Engihjalla í Kópavogi.

Fjórum dögum síðar tók maðurinn aðra bifreið í heimildarleysi við fyrirtæki í Skógarhlíð. Hann ók henni meðal annars um Reykjanesbraut, þar sem hann ók utan í aðra bifreið, en yfirgaf vettvang án þess að sinna skyldum sínum vegna umferðaróhappsins.

Í júní tók hann síðan þriðju bifreiðina heimildarlaust og ók henni um Bústaðaveg þar til lögregla hafði afskipti af honum.

Maðurinn játaði brotin skýlaust. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til játningar hans og þess að hann hefði lagt fram gögn um áfengis- og fíkniefnameðferð. Fyrri auðgunarbrot horfðu hins vegar til refsiþyngingar.

Dómurinn ákvað þriggja mánaða fangelsi en frestaði fullnustu refsingarinnar. Refsingin fellur niður að tveimur árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð.

Honum var jafnframt gert að greiða rúmlega 530 þúsund krónur í málsvarnarþóknun og annan sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sex Íslendingar í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar fíkniefnaaðgerðir

Grindvíkingum mun standa til boða að kaupa húsnæði sitt til baka
Landið

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi
Innlent

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

Hnífakaup erlendis frá enduðu hjá umboðsmanni Alþingis

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús
Myndir
Fólk

Hnísur leika sér fyrir utan 100 milljóna króna hús

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum
Innlent

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi
Innlent

Ökumaður í ólöglegri dvöl framdi tvo aðra glæpi

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin
Heimur

Baráttukonan Jennifer sem neitaði að þegja fannst látin

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“
Innlent

„Við munum höfða mál gegn ríkinu“

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar
Heimur

Kona fann ókunnugt lík í kistu móður sinnar

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð
Heimur

Þriggja ára drengur drukknaði á meðan móðir hans var ölvuð

Innlent

Sex Íslendingar í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar fíkniefnaaðgerðir
Innlent

Sex Íslendingar í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar fíkniefnaaðgerðir

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum
Innlent

Jakob dæmdur fyrir gróft barnaníðsefni í símanum

Stal málverki við Barónsstíg og flúði lögreglu á stolnum bíl
Innlent

Stal málverki við Barónsstíg og flúði lögreglu á stolnum bíl

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi
Innlent

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar
Innlent

Eiríkur sjúkraþjálfari falsaði færslur og fékk milljónir greiddar

Hnífakaup erlendis frá enduðu hjá umboðsmanni Alþingis
Innlent

Hnífakaup erlendis frá enduðu hjá umboðsmanni Alþingis

Loka auglýsingu