1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

5
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Til baka

Foreldrar Emblu opna sig um fráfall hennar

„Þær áttu ótrúlega fallegt samband.“

Sólsetur
SólseturMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: djgis/Shutterstock

Þann 7. júní verða liðin fimm ár frá andláti Emblu Arnars Katrínardóttur sem lést aðeins 14 ára gömul eftir langvarandi og erfið veikindi. Andlát hennar vakti mikla sorg meðal fjölskyldu, vina og samfélagsins alls.

Í ítarlegu viðtali við Heimildina rifja foreldrar Emblu upp líf hennar, veikindabaráttu og þá erfiðleika sem fjölskyldan stóð frammi fyrir áður en hún fékk viðeigandi greiningu. Þau segja að löngu áður en formleg greining lá fyrir hafi þeim verið ljóst að dóttir þeirra væri alvarlega veik, en erfitt hafi reynst að fá áheyrn og skilning á stöðu hennar.

Embla var að sögn foreldra sinna óvenjulegt barn með mikla hæfileika og námsgetu. „Embla var undrabarn,“ segir móðir hennar, Katrín. Faðir hennar, Arnar, tekur undir og lýsir henni sem einstaklega fljótum námsmanni sem hafi lært snemma að lesa og haft mikla ánægju af bókum.

Foreldrarnir minnast þess að foreldraviðtöl í skólanum hafi ávallt verið án áhyggjuefna. Embla tók virkan þátt í fjölbreyttu tómstundastarfi, líkt og systir hennar Agla, og stundaði meðal annars ballett, badminton, skautaíþróttir, siglingar og tækninámskeið.

Sérstaklega minnast þau náins sambands systranna tveggja. Katrín segir Emblu hafa litið mjög upp til eldri systur sinnar og að samband þeirra hafi verið einstakt. „Þær áttu ótrúlega fallegt samband,“ segir hún.

Í viðtalinu rifjar Arnar einnig upp þegar Embla kom fram á ballettsýningu í Borgarleikhúsinu sem ung stúlka. Þar hafi hún staðið fremst á sviðinu í búningi sem var of stór fyrir hana þar sem ekki hafi verið til nógu lítill búningur. „Hún var svo lítil,“ segir hann.

Foreldrarnir segja frá því hvernig minningin um Emblu lifir áfram og hvernig fjölskyldan hefur tekist á við missinn. Á fimm ára ártíð hennar minnast þau dóttur sinnar sem bjó yfir einstökum hæfileikum, mikilli forvitni og hlýju sem hafði áhrif á alla sem kynntust henni.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

„Mestur tími fanga fer í að horfa á hvíta veggi ganga og annarra rýma eða sjónvarp“
Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan
Heimur

Kjósendur í Tennessee ýttu á einn frambjóðanda en vélin valdi annan

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju
Heimur

BBC hrekur sögu Trumps um rússneska skriðdreka sem festust í leðju

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
Innlent

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart
Heimur

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum
Innlent

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael
Innlent

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple
Pólitík

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple

Fjarlægur útvarpsblossi gæti afhjúpað leyndardóm úr frumbernsku alheimsins
Heimur

Fjarlægur útvarpsblossi gæti afhjúpað leyndardóm úr frumbernsku alheimsins

Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

„Mestur tími fanga fer í að horfa á hvíta veggi ganga og annarra rýma eða sjónvarp“
Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael
Innlent

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney
Innlent

Íslenskir rithöfundar lýsa yfir stuðningi við Sally Rooney

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum
Innlent

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum

Loka auglýsingu