Fasteignin við Sóleyjargötu 31 í miðbæ Reykjavíkur hefur verið sett á sölu fyrir 335 milljónir króna. Um er að ræða rúmlega 414 fermetra húseign sem byggð var árið 1933 og hefur á undanförnum árum verið rekin sem gistiheimili.
Samkvæmt skráningu Fasteignamats ríkisins er eignin 414,3 fermetrar að stærð. Húsið stendur á eftirsóttum stað í 101 Reykjavík, skammt frá miðborginni og helstu þjónustu.
Í sölulýsingu kemur fram að húsið sé á fjórum hæðum auk kjallara og hafi verið innréttað með hliðsjón af rekstri gistiheimilis. Aðalinngangur er á fyrstu hæð en alls eru tveir inngangar í eignina.
Í kjallara hússins eru fjögur herbergi, þar af tvö með sérbaðherbergi og tvö með sameiginlegu baðherbergi. Þar er einnig sameiginlegt þvottahús og baðaðstaða fyrir gesti.
Á fyrstu hæð eru fjögur herbergi ásamt eldhúsi og sameiginlegu salerni. Tvö herbergjanna eru með sérbaðherbergi en tvö deila sameiginlegri baðaðstöðu.
Á annarri hæð eru fimm herbergi, þar af tvö með sérbaðherbergi og tvö með sameiginlegri baðaðstöðu. Þá er eitt einstaklingsherbergi á hæðinni með aðgang að sameiginlegu baðherbergi.
Á efstu hæð hússins er svokallað turnherbergi, þriggja manna herbergi með sérbaðherbergi.
Einnig fylgir eigninni bílskúr sem hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð með sérinngangi og baðherbergi.

