Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Stórmynd Balta „sennilega“ fjármögnuð af rússneskum glæpamönnum

Var beðin um að leikstýra tveimur Fast and the Furious myndum

Hafnaði risatilboðum frá Fast & Furious og Marvel
Hafnaði risa­til­boðum frá Fast & Furious og Marvel Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Kvikmynda­leik­stjórinn Baltasar Kormákur var gestur í 325. þætti af hinu vinsæla hlaðvarpi Chess After Dark, í umsjón þeirra Birkis Karls Sigurðs­sonar og Leifs Þorsteins­sonar. Í þættinum ræðir Baltasar opinskátt um ferilinn, komu sína inn í bandaríska kvikmynda­heiminn og hvernig hann hefur náð að halda velli þar áratugum saman.

Í spjallinu ljóstraði hann því upp að honum hafi snemma á ferlinum boðist tækifæri sem flestir kvikmynda­gerðarmenn gætu aðeins látið sig dreyma um.

Setti listrænan heiðarleika fram yfir peningana

Í þættinum spurði hlaðvarps­stjórn­andinn Baltasar beint út í lykilinn að velgengninni vestanhafs: „Hvernig kemst maður inn í Hollywood og kannski mikil­vægara hvernig heldur maður sér þar?“

Baltasar sagði mikil­vægast að elta eigin ástríðu frekar en kröfur markaðarins eða peninga. „Hvernig myndir finnst þér mest gaman að horfa á? Gerðu þær! Ekki gera myndir sem aðrir vilja að þú gerir. Ég held að þú sért bestur í að gera það sem þér finnst skemmtilegast,“ svaraði Baltasar og nefndi sem dæmi að hann væri líklega ekki rétti maðurinn í að leikstýra bandarískri pólitískri satíru.

Hann útskýrði málið frekar og sagði sögu af risa­stórum tilboðum sem hann fékk á borð sitt á yngri árum en ákvað að hafna.

„Það er mikilvægt að reyna að hlusta, alveg eins og þegar mér var boðið að gera Fast and the Furious, tvær myndir, mjög snemma á ferlinum. Það þýddi bara að ég hefði ekki þurft að hugsa um peninga það sem eftir væri ævinnar [...] En það er bara þannig að ég hef aldrei haft gaman af þessum myndum. Og af hverju ætti ég þá að fara að gera þær? Sama með Marvel, ég hef aldrei haft gaman af þessum myndum.“

Hann bætti því við að þótt þetta gætu verið prýðilegar myndir fyrir aðra, þá yrði maður að vera trúr sjálfum sér. „Ég er bara ekki rétti maðurinn til að gera það [...] Vertu samkvæmur sjálfum þér. Reyndu það í öllu þessu, þar sem allir eru að reyna að toga í þig í allar áttir.“

„Hollywood er bara hugmynd“

Aðspurður um Hollywood-kerfið sjálft og hvernig það virkar, sagði Baltasar að fólk skyldi ekki ímynda sér það sem ákveðinn eða afmarkaðan stað.

„Hollywood er náttúru­lega bara mjög einhvern veginn allt og ekkert. Það er engin hurð að Hollywood, það er ekkert anddyri. Þú getur ekki bankað upp á neinstaðar,“ sagði Baltasar.

Hann benti á að skilgreiningin á „Hollywood-mynd“ væri mun víðtækari en fólk heldur og nefndi eigin verkefni sem dæmi. „Everest var til dæmis gerð af bresku kvikmynda­fyrirtæki, tekin upp á Ítalíu, Englandi og Nepal en samt Hollywood-mynd. 2 Guns var fjár­mögnuð af Rússum, sennilega glæpa­mönnum. Og hún var líka Hollywood-mynd. Hollywood er bara hugmynd um stórar myndir, oftast á ensku sem fólk fer almennt á í bíó. Það er ekkert í raun og veru skilgreining á því.“

Rússneskir glæpamenn, kókaínsmygl og sýndarsjóðir

Fjár­mögnun kvik­myndarinnar 2 Guns (2013) var mjög flókin og tengdist mönnum með dökka glæpa­fortíð og tengsl við Rússland, en aldrei var sannað að peningarnir sjálfir hefðu verið afrakstur rússneskrar skipulagðrar glæpa­starfsemi.

Rannsóknar­blaðamaður hjá The Hollywood Reporter fletti ofan af bakhjarla myndarinnar og komst að eftir­farandi. Hluti af fjár­mögnun myndarinnar kom í gegnum fyrir­tækið Envision Entertainment, sem var stýrt af mönnunum Stepan Martirosyan og Remington Chase. Þeir kynntu sig sem viðskipta­menn með auðæfi úr rússnesku atvinnu­lífi.

Í ljós kom að bæði Martirosyan og Chase höfðu áður hlotið þunga dóma í Banda­ríkjunum fyrir stórfellt kókaín­smygl á 9. og 10. áratugnum. Þá var Martirosyan bendlaður við rannsókn á samnings­bundnu leyni­morði á rússneskum olíu- og gasauðjöfri í Moskvu árið 2009, þar sem morðinginn fullyrti að Martirosyan hefði útvegað vopnin.

2 Guns treysti alls ekki bara á þessa tvo menn. Myndin kostaði um 61 milljón Bandaríkja­dala í fram­leiðslu og nýtti meðal annars 17,6 milljónir dala í opinbera skatta­afslætti frá Louisiana-fylki, auk þess sem stór fjár­festingar­sjóður í Dubai (Oasis Ventures) og kvikmynda­verið Universal Pictures fjár­mögnuðu verkefnið.

Sagan er því sú að menn með mjög vafasama fortíð og rússneskar tengingar settu raun­verulega peninga í myndina (og töpuðu þeim reyndar), en þeir voru aðeins einn af mörgum í lögmætri og marg­skiptri fjár­mögnun myndarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“