Rúmlega 30 kindur eru innilokaðar í fjárhúsi í Grindavík en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Dýraverndarsambandi Íslands. Þá segja þau mikilvægt að bjarga dýrunum en yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan.
„Dýraverndarsambandið hefur fengið staðfest að um 30 kindur séu innilokaðar í fjárhúsi í Grindavík nærri götunni Bakkalág. Einnig er sauðfé innilokað í fjárhúsi við Sjávarbraut og í fjárhúsum í Þórkötlustaðahverfi. Ekki er hægt að sækja dýrin við þær aðstæður sem nú eru í Grindavík. Engu að síður er nauðsynlegt að dýrunum sé hleypt út strax svo þau geti forðað sér úr þeim hættulegu aðstæðum sem nú eru á svæðinu.
DÍS beinir því til almannavarna sem annarra ábyrgra aðila í þeim aðgerðum sem nú eru í Grindavík að reyna, ef þess gerist nokkur kostur, að koma koma þessum skepnum til bjargar.
Stjórn Dýraverndarsambands Íslands“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir