Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Ýkjur um fjölda hælisleitenda: „Vilja þeir hætta að veita Úkraínumönnum mannúðarvernd?“

Ólafur Þ Harðarson prófessor í stjórnmálafræði.
Ólafur Þ Harð­ar­son pró­fessor í stjórn­mála­fræði.

Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, hefur tekið saman töl­fræði varð­andi hæl­is­leit­endur á Íslandi og sýnir fram á að vanda­málið er tals­vert minna en margir tala um.

Ólafur skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann tekur saman töl­fræði í sam­bandi við hæl­is­leit­endur hér á landi. Segir hann að í umræð­unni um hæl­is­leit­endur hafi margir bent á fjölda umsækj­enda síðstu tvö árin. Fjöldi umsækj­enda voru 4520 árið 2022 og 4155 árið 2023 en mun færri 2021. „Færri hafa leitt hug­ann að því hversu margir hafa fengið vernd – í sam­ræmi við núgild­andi reglu­verk,“ skrifar Ólafur og birtir svo tölur frá Útlend­inga­stofnun. „Árið 2023 voru umsóknir frá Úkraínu 1618. Veitt mann­úð­ar­leyfi vegna fjölda­flótta frá Úkraínu voru 1560.

Árið 2023 voru umsóknir frá Venes­ú­ela 1586. Hæli fengu 58, en 783 umsóknum var synjað. Margir bíða enn efn­is­legrar afgreiðslu, en vafa­lítið munu flestir þeirra fá synjun.

Árið 2023 voru umsóknir frá öllum öðrum löndum 951. 572 slíkar umsóknir fengu efn­is­lega með­ferð, 218 var hafnað en 354 fengu vernd.“

Þá segir Ólafur að margar umsóknir bíði afgreiðslu og að flestir virð­ist sam­mála um óvið­un­andi seina­gang við afgreiðslu umsókna. „Kúfurinn í óaf­greiddum umsóknum er frá Venes­ú­ela­búum, sem sóttu um hæli í stórum stíl vegna þess að um ára­bil fengu þeir hæli af mann­úð­ar­á­stæðum vegna fjölda­flótta eins og Úkra­ínu­menn. Nú hefur því verið breytt og umsóknum mun vænt­an­lega fækka stór­lega.“

Að lokum tekur Ólafur saman töl­urnar og spyr tveggja áleit­inna spurn­inga:

„Sem sagt: Árið 2023 fengu 1618 Úkra­ínu­menn vernd, 58 Venes­ú­ela­búar og 354 frá öðrum löndum. Þeir sem vilja fækka þeim sem fá vernd miðað við 2023 þurfa að svara tveimur spurn­ingum:1. Vilja þeir hætta að veita Úkra­ínu­mönnum mann­úð­ar­vernd vegna fjölda­flótta (1618 árið 2023)?2. Vilja þeir fækka fólki frá öllum öðrum löndum sem fá vernd (412 árið 2023)?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

6
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Lokamat við útskrift verður á kvarðanum 4 til 10, þótt skólar séu hvattir til að nota kvarðann 1 til 10 við námsmat yfir veturinn.
Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum