InnlentÖllum þolendum Gunnars prests vikið frá störfum Sunna Dóra Möller prestur segir miklar starfsmannahreinsanir hafa átt sér stað frá því að mál Gunnars Sigurjónssonar prests kom upp í desember árið 2021. Þar sökuðu sex konur Gunnar um einelti, kynferðislega áreitni og kynbundið ofbeldi. Í skýrslu frá óháðu teymi þjóðkirkjunnar var að lokum staðfest á síðasta ári á Gunnar hefði gerst sekur um tíu brot. „Organistinn er síðasti...
InnlentHringdi á lögreglu vegna manna sem höguðu sér stórfurðulega í Hlíðunum en þetta kom í ljós Lögreglu barst tilkynning um þrjá aðila sem voru að ýta bifreið í Hlíðunum í gærkvöldi. Tilkynnandi taldi mennina vera undir áhrifum áfengis en þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að ekkert athugavert var við aðilana. Ökumaður var látinn blása í öndunarprófsmæli og mældist 0,0%. Ekki liggur fyrir hvers vegna mennirnir höguðu sér svo undarlega en málið var leyst...
InnlentGómuðu leðurklæddan þjóf við Laugarásveg: „Þegar við snerum hann niður grét hann eins og barn“ Þann 30 apríl árið 1987 greindi DV frá sérkennilegri reynslu tveggja systkina þegar þau gómuðu innbrotsþjóf á heimili foreldra þeirra. Þjófurinn brást illa við þegar komið var upp um áætlanir hans og grét hástöfum þar til lögreglan kom á vettvang. „Leðurklæddi þjófurinn smaug inn um ofurlítinn glugga á jarðhæð hússins laust fyrir klukkan 5 um nóttina. Húsráðendur voru erlendis en...
InnlentHalldór Benjamín er hættur og kominn með nýtt starf: „Blendnar tilfinningar að kveðja“ Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur ákveðið að hætta hjá samtökunum. Þetta kom fram í tilkynningu frá SA nú í kvöld. Stuttu síðar var tilkynnt að Halldór Benjamín sé nýráðinn forstjóri fasteignafélagsins Regins; mun hann hefja störf sem forstjóri fyrri hluta sumars 2023. Helgi S. Gunnarsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Regins frá stofnun þess árið 2009, lætur af...
InnlentNýjasti stórmeistarinn: „Langar að það komi upp kynslóð á eftir mér sem verður heimsklassa í skák“ Vignir Vatnar Stefánsson er nýjasti stórmeistari Íslands í skák; hann er viðmælandi hlaðvarpsins Íþróttavarpið sem er á RÚV. Þar fer Vignir um víða, ræðir ferilinn, kennarahlutverkið, skákáhrifavalda sem og hugmyndina um hinn hamingjusama skákmanninn. Hinu frábæra afreki sínu nái Vignir þann 22. mars síðastliðinn; hann náði síðasta áfanga stórmeistaratitilsins í febrúar: En Ttil að verða stórmeistari þarf að ná 2.500...
InnlentBrynjar hæðist að Illuga og Hallgrími: „Það eru mörg gáfnaljósin sem hafa aðgang að lyklaborði“ „Það eru mörg gáfnaljósin sem hafa aðgang að lyklaborði. Þar eru fremstir flokki Illugi Jökuls og Hallgrímur Helga, bæði að mínu mati og þeirra eigin.“ Svona hefst Facebook-færsla frá Brynjari Níelssyni, aðstoðarmanni Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra sem hann birti í dag. Tilefnið voru skrif Illuga Jökulssonar rithöfundar og fjölmiðlamanns. Illugi skrifaði færslu á Facebook þar sem hann fór yfir umsækjendalista um...
InnlentArnar Þór Viðarsson rekinn Stjórn KSÍ hefur tekið þá ákvörðun að leysa Arnar Þór Viðarsson frá störfum sem þjálfara A landsliðs karla; mun nú hefjast leit að eftirmanni hans. „Stjórnin metur þetta nauðsynlegt skref með hagsmuni liðsins í huga og möguleikann á að ná þeim árangri sem þarf til að koma liðinu aftur í fremstu röð,“ eins og segir á vef KSÍ. „Þetta er...
InnlentKristrún boðar stórátak: „Á Suðurnesjum hefur fólk upplifað sig landlaust í heilbrigðiskerfinu“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar boðar tugi opinna funda um heilbrigðismál; hún fór á fyrstu opnu fundina á Suðurnesjum í vikunni, en Kristrún er þó ekki hætt í fæðingarorlofi. Fyrstu fundirnir fóru fram á Suðurnesjum í vikunni þar sem Kristrún mætti til leiks, þrátt fyrir að vera í fæðingarorlofi; fundirnir eru opnir öllum og eru fyrsta skrefið í nýju og viðamiklu...
InnlentBreiðablik og Vestri gera með sér samkomulag Knattspyrnudeildir Breiðabliks og Vestra skrifuðu undir samstarfssamning í gær. Samstarfið snýst um að að iðkendur hjá Vestra sem koma suður til lengri eða skemmri tíma geta sótt æfingar hjá hjá Breiðabliki í sínum flokkum. Einnig munu þjálfarar Vestra í yngri flokkum geta sótt fræðslu með þjálfurum Breiðabliks eftir því sem hentar og tekið þátt í faglegu starfi. Iðkendur í Breiðabliki...
InnlentNærmynd af Magnúsi Aroni sem sakaður er um morð: „Bjó einn hjá mömmu sinni, brjálaður út í lífið“ Loftið var rafmagnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær er réttað var yfir Magnúsi Aroni Magnússyni í Barðavogsmálinu. Hann er sakaður um kaldrifjað morð. Í salnum var talsverður fjöldi aðstandenda fórnarlambsins, Gylfa Bergmanns Heimissonar, og þó nokkir blaðamenn. Magnús virtist hinn öruggasti. Hann fór í störukeppni við blaðamenn sem þar voru staddir til að skrifa um málið. Augnaráð hans var ögrandi....
InnlentFjármögnun tryggð til að ráðast í viðamiklar breytingar á örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfinu Í fjármálaáætlun sem kynnt var fyrr í dag er tryggð fjármögnun til að ráðast í viðamiklar breytingar á örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfinu. Fjármögnunin er hluti af heildarendurskoðun alls kerfisins sem er stærsta áherslumál Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra. Samkvæmt fjármálaáætlun 2024-2028 mun fjárveiting til heildarendurskoðunarinnar hækka um 500 milljónir króna árið 2024 til undirbúnings breytingunum. Ári síðar hækkar fjárveitingin um...
InnlentBrunað yfir á rauðu – Hversu dýrkeypt er sektin þín? Ökumenn ættu allir að vita að viðurlög vegna umferðalagabrota á lögunum varða sektum. Sektirnar eru misháar og draga misjafnan dilk á eftir sér. Hafi ökumaður gerst sekur um umferðalagabrot má kynna sér, á heimasíðu lögreglunnar, hverjar og hversu háar sektirnar eru. Skoða má sektarreikninn hér Samkvæmt lögum ber lögreglustjóra að veita sakborningi 25% afslátt af sektarfjárhæðinni vegna brota á umferðarlögum...