Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nærmynd af Magnúsi Aroni sem sakaður er um morð: „Bjó einn hjá mömmu sinni, brjálaður út í lífið“

Magnús Aron Magnússon í Héraðsdómi í apríl
Magnús Aron Magn­ús­son í Hér­aðs­dómi í apríl Mynd: Björgvin Gunnarsson

Loftið var rafmagnað í Héraðs­dómi Reykja­víkur í gær er réttað var yfir Magnúsi Aroni Magnússyni í Barða­vogsmálinu. Hann er sakaður um kaldrifjað morð. Í salnum var talsverður fjöldi aðstand­enda fórnar­lambsins, Gylfa Bergmanns Heimis­sonar, og þó nokkir blaðamenn. Magnús virtist hinn öruggasti. Hann fór í störu­keppni við blaðamenn sem þar voru staddir til að skrifa um málið. Augnaráð hans var ögrandi. Ekki var að sjá merki um iðrum í augum hans.

Var á skilorði

Eins og fram kom í fréttum í gær hófst aðal­meðferð í hinu svokallaða Barða­vogsmáli en Magnús Aron Magnússon varð valdur að dauða nágranna síns, Gylfa Bergmanns Heimis­sonar eftir átök sem brutust út á milli þeirra eftir að Gylfi bankaði á dyr Magnúsar. Í réttar­salnum voru meðal annars aðstand­endur Gylfa og blaðamenn frá nokkrum miðlum, þar á meðal frá Mannlífi. Magnús Aron fór ítrekað í störu­keppni við blaðamenn þar sem hann starði stíft í augu þeirra þar til þeir litu undan til að halda áfram vinnu sinni.

Mannlíf tók saman nærmynd af Magnúsi. Frekar lítið er vitað um hann en ýmislegt í fari hans gaf vísbendingu um að hræðilegur atburður væri í vændum.

Magnús hlaut dóm árið 2020 fyrir of­beld­is­brot og brot á barna­vernd­ar­lög­um en samkvæmt heimildum mbl.is veittist hann með ofbeldi, yfirgangi og vanvirðandi háttsemi að ungum dreng árið 2019. Var Magnús tæplega átján ára er atvikið gerðist. Fyrir brotið hlaut hann 30 daga fang­els­is­dóm sem var skil­orðsbund­inn til tveggja ára en dómurinn var kveðinn upp 24. júní 2022, sem þýðir að Magnús var enn á skilorði er hann var hand­tekinn grunaður um mann­drápið þann 4. júní í fyrra. Þá var hann einnig hand­tekinn árið 2019 vegna ofbeldis­fullrar hegðunar í garð mótmælenda á Austur­velli sem þá lýstu stuðningi við flótta­menn. Einnig höfðu borist kvartanir yfir honum vegna þess að hann sparkaði í hunda sem hann mætti á göngum.

Vissi að eitthvað alvarlegt myndi gerast

Skúli Þór Hilmarsson sem bjó í þrettán ár í sama húsi og Magnús, sagði í samtali við Mannlíf að hann hafi vitað að eitthvað alvarlegt ætti eftir að gerast tengt Magnúsi. „Það var svona fjölda­morðingja vibe frá honum, allan tímann sem ég bjó þarna. Við töluðum oft um það að þetta ætti eftir að enda með ósköpum, alveg pottþétt. Ég tuddaði hann aðeins niður. Hann lét okkur alveg í friði en ég man að hann spurði mig einhvern tíma „Hvað ertu þungur?“ og ég sagði „Ég er svona 85 eitthvað svoleiðis“. Þá svaraði hann „Ég er 90“. Hann var með svona dólg. Og hann tók geðrofsköst alveg greini­lega, maður sá hann stundum labba fram og til baka uppi í herberginu sínu. Eins og hefur komið fram fór hann bara út á nóttunni en aldrei út á daginn en gaurinn sem var í kjallaranum á undan Gylfa sagði mér að hann hefði verið oft að væflast og kíkja inn um gluggana og svoleiðis. Hann tók alltaf göngutúr upp úr ellefu, hálf tólf til eitt – tvö á nóttunni. Hann tikkaði bara í öll boxinn, bjó einn hjá mömmu sinni, brjálaður út í lífið, pínandi dýr.“

Aðspurður hvað hann meinti með að hafa „tuddað hann niður“ svaraði Skúli Þór: „Hann kom til dæmis inn á ganginn þar sem ég stóð með dætrum mínum, vorum að klæða okkur í skóna. Þá hrinti hann upp hurðinni og ætlaði bara að labba okkur niður. Þá stóð ég upp og ýtti á bringuna á honum og sagði „Hey, slakaðu aðeins á maður, við erum að klæða okkur hér“ og hann bara „Já“. Ég setti hann bara á sinn stað.“

Þá segir Skúli að móðir Magnúsar hafi þrisvar sinnum hringt í lögregluna á meðan hann bjó í húsinu.

Erfið æska

Fram kemur í frétt mbl.is að foreldrar Magnúsar hafi skilið þegar hann var unglingur og að það hafi verið honum afar þungbært. Lára Björgvins­dóttir geðlæknir sinnti geðmati á Magnúsi, ásamt teymi geðlækna og sálfræðinga. Bar hún vitni fyrir dómi í dag í málinu en mbl.is hefur eftir henni að aðstæður Magnúsar hafi verið erfiðar er hann var að alast upp: „Hann ólst upp við erfiðar aðstæður. Hann átti erfitt í grunn­skóla og eignaðist ekki vini. Eft­ir grunn­skóla fer hann í skóla og reyn­ir eitt­hvað að vinna. Það ein­hvern­veg­in geng­ur ekki upp. Það sem ger­ist síðan er að það kem­ur Covid. Þá ein­angr­ast hann enn meira. Hann vill ekki fá spraut­ur. Hann er hrædd­ur og ein­angr­ar sig.“ Þá hafi systur hans slitið samskiptum við hann þegar hann var um 15, 16 ára því þær upplifðu óöryggi í samskiptum við hann. Þá sagði Lára einnig að svo virðist sem foreldrar Magnúsar hafi staðið í vegi fyrir því að hann fengi viðeigandi hjálp þegar hann var að alast upp en Lára sagði hann sýna merki um væga einhverfu og persónu­leika­röskun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim