Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kristrún boðar stórátak: „Á Suðurnesjum hefur fólk upplifað sig landlaust í heilbrigðiskerfinu“

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kristrún Frosta­dóttir formaður Samfylkingarinnar boðar tugi opinna funda um heilbrigðismál; hún fór á fyrstu opnu fundina á Suðurnesjum í vikunni, en Kristrún er þó ekki hætt í fæðingar­orlofi.

Fyrstu fundirnir fóru fram á Suðurnesjum í vikunni þar sem Kristrún mætti til leiks, þrátt fyrir að vera í fæðingar­orlofi; fundirnir eru opnir öllum og eru fyrsta skrefið í nýju og viðamiklu málefna­starfi sem Kristrún kynnti á flokks­stjórnar­fundi á dögunum.

Það sætir tíðindum að íslenskur stjórn­málaflokkur blási til þvílíks fjölda opinna funda um einn tiltekinn málaflokk og það á miðju kjör­tímabili.

Þetta gefur vísbendingu um áherslur Samfylkingarinnar fyrir næstu Alþingis­kosningar en flokkurinn hefur nú ítrekað mælst stærsti stjórn­málaflokkur landsins í skoðana­könnunum.

„Heilbrigðis­málin og öldrunar­þjónustan verða í forgrunni hjá okkur núna og alveg fram á haust. Við byrjum vinnuna með hátt í fjörutíu opnum fundum með fólkinu í landinu og okkur fannst við hæfi að hefja funda­ferðina á Suðurnesjum — þar sem heilbrigðis­málin hafa svo sannarlega brunnið á íbúum,“ segir Kristrún eftir fyrstu fundina sem voru í Reykja­nesbæ, í Garði og í Grindavík.

Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar heim­sótti Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja (HSS) í síð­ustu viku og fékk mynd með fólk­inu á gólf­inu. Suð­ur­nesin eru fyrstu við­komu­staður í funda­ferð Sam­fylk­ing­ar­innar um heil­brigð­is­mál.

Á hverjum fundi verða fulltrúar úr stýrihópi Samfylkingarinnar um heil­brigðis- og öldrunar­þjónustu auk forystu­fólks flokksins, bæði á Alþingi og í sveitar­stjórnum.

„Ég hélt sjálf fjölda opinna funda um land allt á síðasta ári sem höfðu mikil áhrif á mig. Svona viljum við gera þetta og við tökum vinnuna alvarlega. Nú undirbúum við breytingar á sviði heilbrigðis­mála enda ekki vanþörf á,“ segir Kristrún.

Kristrún vill „opna flokkinn“ Kristrún leggur áherslu á að öllum sé velkomið að mæta á fundina og taka þátt. Ekki verði spurt um flokks­skírteini fólks.

„Við viljum opna flokkinn og leggja áherslu á að taka samtal við fólkið í landinu. Fólk með sérþekkingu í heilbrigðis­málum eða reynslu af gólfinu er auðvitað sérstak­lega velkomið en sama gildir um alla almenna borgara sem vilja breytingar til hins betra í heilbrigðis­málum á Íslandi,“ segir Kristrún og bætir við að þetta samtalið sé aðeins upphafið að viðameiri vinnu.

„Þetta er bara byrjunin. Stýri­hópurinn sem leiðir vinnuna mun einnig eiga fjölda funda með fólki af gólfinu og öðrum sérfræðingum úr heilbrigðis­kerfinu.

Ég fór með á slíka fundi á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja og á Hrafnistu fyrir helgi. Ég bind miklar vonir við þessa vinnu og hlakka til að kynna þá stefnu sem við munum leggja fram næsta haust í þessum mikilvæga mála­flokki.“

Kristrún heim­sótti einnig Hrafn­istu á Nes­völlum í Reykja­nesbæ og spjall­aði meðal ann­ars við Arnbjörn Hans Ólafsson, gamlan krata úr Keflavík.

Þó að það verði aldrei allir sammála um viða­mikinn málaflokk á borð við heilbrigðismál segir Kristrún að það teiknist fljótt upp skýr mynd eftir samtöl við almenning.

„Þetta var mín reynsla af fundunum í fyrra. Maður fer af stað með stóra mála­flokka og heldur að það sé erfitt að finna rauðan þráð. En það er fljótt að teiknast upp ákveðið þema,“ segir hún og bætir við að eftir fyrstu fundina á Suðurnesjum sé strax farin að teiknast upp skýr mynd af raunhæfum væntingum fólks til heilbrigðis­þjónustunnar:

„Fólki finnst vont að eiga ekki einhvern fastan punkt í lífi sínu þegar kemur að í heilbrigðis­þjónustu. Það veldur óöryggi að eiga ekki fastan tengilið eða teymi sem þekkir til aðstæðna manns og jafnvel sjúkra­sögu. Á Suðurnesjum hefur fólk upplifað sig landlaust í heilbrigðis­kerfinu og þetta á auðvitað við víðar um land. Ég held að fólk sé að kalla eftir heilbrigðis­þjónustu sem hefur kost á að veita fólki þessa öryggis­tilfinningu sem gæti fengist með meiri nánd og tíma fyrir persónulegri þjónustu.“

Af opnum fundi um heil­brigð­is­mál í Kiwanishúsinu í Garði síð­ast­liðið mánu­dags­kvöld.

Þetta nefnir Kristrún sem dæmi en tekur þó fram að það séu fleiri atriði sem hafi komið fram á öllum opnu fundunum til þessa.

Kristrún segist þó ekki vera snúin til baka úr fæðingar­orlofinu.

„Nei, ég er enn í orlofi. En mér finnst skipta máli að fylgja þessu verkefni vel úr hlaði. Þess vegna mæti ég þar sem ég get og tek samtalið við heimamenn. Og ég hugsa að dóttir mín sé löngu orðin vön svona fundum úr móður­kviði. Auðvitað fylgist ég líka vel með og gæti haft sitthvað að segja um fjármála­áætlun til dæmis — en félagar mínir í þing­flokki Samfylkingarinnar standa þá vakt og munu halda ríkis­stjórninni við efnið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim