Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Brynjar hæðist að Illuga og Hallgrími: „Það eru mörg gáfnaljósin sem hafa aðgang að lyklaborði“

Brynjar Níelsson. Mynd/Skjáskot
Brynjar Níelsson. Mynd/Skjáskot

„Það eru mörg gáfna­ljósin sem hafa aðgang að lykla­borði. Þar eru fremstir flokki Illugi Jökuls og Hall­grímur Helga, bæði að mínu mati og þeirra eigin.“ Svona hefst Facebook-færsla frá Brynjari Níelssyni, aðstoðar­manni Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra sem hann birti í dag.

Tilefnið voru skrif Illuga Jökuls­sonar rithöfundar og fjölmiðla­manns. Illugi skrifaði færslu á Facebook þar sem hann fór yfir umsækjenda­lista um stöðu Lögreglu­stjórans í Vestmanna­eyjum. Eins og kunnugt er réði Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra Karl Gauta Hjaltason en ráðningin hefur vakið reiði margra en Karl Gauti var einn af þing­mönnunum sem náðust á upptöku á Klausturbar þar sem þeir þóttu sýna af sér meðal annars kven­fyrirlitningu. Brynjar hélt áfram:

„Hér fer Illugi yfir umsækjendur um stöðu Lögreglu­stjórans í Vestmanna­eyjum af mikill þekkingu og yfirvegun, eins og gjarnan þegar hann tjáir sig a netinu. Hann skilur ekkert í því að ráðherra hafi skipað Karl Gauta í embættið þegar aðrir hæfir umsækjendur stóðu til boða og þar á meðal traustur sjálfstæðis­maður,“ skrifaði Brynjar en við færsluna var hlekkur á frétt um færslu Illuga.

Að lokum sendir Brynjar pílu á þá sem gagnrýnt hafa ráðninguna hvað helst:

„En ég vil segja við Illuga, bæjar­stjóra og aðra sérfræðinga sem halda að lögin eigi bara að gilda þegar þeim hentar, að ráðherra ber að skipa þann sem metinn er hæfastur. Hefði ráðherra ekki gert það væri Hall­grímur Helga sennilega búinn að birta færslu um vald­níðslu ráðherra og lögbrot. Svona er veröldin skrítin“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim