Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fjármögnun tryggð til að ráðast í viðamiklar breytingar á örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfinu

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er í framboði til varaformanns VG
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er í fram­boði til vara­for­manns VG

Í fjármála­áætlun sem kynnt var fyrr í dag er tryggð fjár­mögnun til að ráðast í viða­miklar breytingar á örorku- og endur­hæfingar­lífeyris­kerfinu. Fjár­mögnunin er hluti af heildar­endurskoðun alls kerfisins sem er stærsta áherslumál Guðmundar Inga Guðbrands­sonar, félags- og vinnu­markaðs­ráðherra.

Samkvæmt fjármála­áætlun 2024-2028 mun fjár­veiting til heildar­endur­skoðunarinnar hækka um 500 milljónir króna árið 2024 til undir­búnings breytingunum. Ári síðar hækkar fjár­veitingin um ríflega 15 milljarða króna, en þá er gert ráð fyrir að ný heildarlög í mála­flokknum taki gildi.

Árið 2026 er gert ráð fyrir að innleiðingu ljúki og eykst fjár­veiting þá um rúman einn milljarð króna og er gert ráð fyrir að hækkunin verði þá samtals rúmlega 16 milljarðar króna.

„Ég er gríðar­lega ánægður með að við höfum fjár­magnað breytingar sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir. Umbylting örorku- og endur­hæfingar­lífeyris­kerfisins mun marka vatnaskil, þar sem aukin áhersla verður á virkni fólks og tækifæri á vinnu­markaði fyrir þau sem hafa mismikla starfs­getu. Fjár­veitingin þýðir að við getum gert kerfið einfaldara, gagnsærra og rétt­látara og stutt enn frekar við þau sem lökust hafa kjörin.

Ég er stoltur af þessari áherslu ríkis­stjórnarinnar sem sýnir að forgangs­raðað er í þágu fólks á örorku og í endur­hæfingu,“ segir Guðmundur Ingi.

Bætir við:

„Næsta skref er að vinna áfram að undir­búningi og innleiðingu nýs kerfis og á haust­þingi mun ég mæla fyrir frumvarpi þess efnis.“

Endur­skoðunin sem nú stendur yfir á örorku- og endur­hæfingar­lífeyris­kerfinu er þrepa­skipt og hefur fyrstu áföngunum þegar verið náð með samþykkt laga um lengingu á tímabili endur­hæfingar­lífeyris og nær tvöföldun á frítekju­marki örorku­lífeyrisþega en 14 ár voru liðin síðan frítekju­markið hafði síðast verið hækkað.

Annað áherslumál félags- og vinnu­markaðs­ráðherra er verkefnið Gott að eldast sem snýst um heildar­endurskoðun á þjónustu við eldra fólk. Verkefnið er á ábyrgð félags- og vinnu­markaðs­ráðuneytis og heilbrigðis­ráðuneytis. Samkvæmt nýrri fjármála­áætlun munu alls 700 milljónir króna renna til þeirra aðgerða í aðgerða­áætluninni sem eru á ábyrgð félags- og vinnu­markaðs­ráðuneytisins og dreifast þær á árin 2025-2027.

Markmiðið með Gott að eldast er að trygga eldra fólki þjónustu við hæfi og auka möguleika þess á að búa sem lengst heima. Megin­þungi aðgerða­áætlunarinnar sem ráðherra mælti fyrir á Alþingi nýlega hvílir á þróunar­verkefnum um samþættingu félags- og heilbrigðis­þjónustu fyrir eldra fólk, en einnig á nýsköpun, aukna andlega og líkamlega virkni og stórbætt upplýsinga­flæði um þjónustu.

„Það er stór áfangi að fá inn fjármagn í verkefnið Gott að eldast. Sú vegferð sem við erum hér að hefja mun umbylta þjónustu við eldra fólk. Hluti af verk­efninu þarf að fela í sér hugarfars­breytingu gagnvart eldra fólki og viðurkenningu á mikilvægi þekkingar, reynslu og mannauðs sem þessi hópur samfélagsins býr yfir. Eldra fólk er svo sannarlega virði en ekki byrði,“ sagði ráðherrann Guðmundur Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim