Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nýjasti stórmeistarinn: „Langar að það komi upp kynslóð á eftir mér sem verður heimsklassa í skák“

Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák. Mynd / Skák.is.
Vignir Vatnar Stef­áns­son, stór­meist­ari í skák. Mynd / Skák.is.

Vignir Vatnar Stef­ánsson er nýjasti stór­meistari Íslands í skák; hann er viðmælandi hlað­varpsins Íþrótta­varpið sem er á RÚV.

Þar fer Vignir um víða, ræðir ferilinn, kennara­hlutverkið, skák­áhrifavalda sem og hugmyndina um hinn hamingju­sama skák­manninn.

Hinu frábæra afreki sínu nái Vignir þann 22. mars síðastliðinn; hann náði síðasta áfanga stór­meistara­titilsins í febrúar: En Ttil að verða stór­meistari þarf að ná 2.500 ELO-stigum og sýna svo í þrígang stór­meistara­leik á móti, til að sýna fram á að titillinn sé algjölega verð­skuldaður.

Vignir segir að þarna hafi draumur ræst hjá honum.

„Þetta er búinn að vera draumurinn síðan ég var 6 ára. Ég er ennþá að jafna mig á þessu.“

Bætir við:

„Í byrjun 2022 náði ég áfanga í byrjun janúar, og það var bara létt. Það gekk allt upp. Svo mánuði síðar náði ég aftur áfanga þannig að ég hélt að þriðji kæmi bara strax. En svo tók hann ár. Ég var orðinn smá stressaður með síðasta áfangann.“

Vignir byrjaði ungur að iðka skákina; fór hann á sitt fyrsta mót 6 ára gamall, Torgmót Fjölnis. Þar vakti hann athygli.

„Þar var þáverandi formaður Skák­sambandsins, Björn Þorfinnsson, sem er reyndar ritstjóri DV í dag. Hann sá mig tefla og sagði:

„Núna fer þessi í skák, hann er ekkert að fara að gera neitt annað þessi!“ og hann tók mig í einkatíma og allt í einu var ég bara… ég var fljótt orðinn mjög efnilegur.“

Vignir er einungis tvítugur, en hefur miklum tíma ævi sinnar í skákflakk um heiminn til að tefla; viðurkennir að það geti orðið ansi einmanalegt.

„Ég var mjög heppinn með það að ég slysaðist inn í mjög gott félagslíf. En ég er oft að ferðast um heiminn og oft einn. Það styrkir mann og byggir karakter en ég ætla ekki að gera það til langs tíma. Ég hef engan áhuga á að búa í ferða­tösku með enga fjöl­skyldu og vera hamingju­samur með eitthvað skákborð á einhverju kaffihúsi í Brasilíu eða eitthvað. Það meikar engan sens fyrir mér.“

Vignir hefur verið duglegur að aðstoða; kennir yngri og óreyndari skák­mönnum.

„Ég virkilega reyni mitt allra besta, ég vil virkilega gefa af mér. Við erum alveg skákþjóð en við erum efni í frábæra þjóð í skákinni eins og við vorum árið 1990. Þá vorum við heims­klassa. Mig langar rosalega mikið að það komi upp kynslóð á eftir mér sem verður heims­klassa í skák, eða allavega einn eða tveir sem verða heims­klassa.“ „Það er mikilvægt fyrir mig líka, sem manneskja, að gefa af mér á sviði sem ég get gert það. Ég var alltaf að ferðast til að klára áfangann; síðustu tvö árin er ég búinn að vera út um allt að tefla. Núna verð ég heima í apríl og þá verð ég bara að kenna. Ég þarf að passa mig bara að þeir vinni mig ekki!“ segir hann og hlær.

„Ég ætla að kenna þeim nógu mikið en ég ætla að halda áfram að bæta mig sjálfur. Eftir að ég varð stór­meistari verð ég að passa mig á gegn hverjum ég tapa. Maður heyrir þetta alltaf: „Já, ég vann stór­meistara hérna,“ og ég ætla ekki að vera sá stór­meistari.

Samfélags­miðlar og vefstreymi spila sífellt stærri rullu í skák­heiminum, eins og annars staðar í samfélaginu. Upp hafa sprottið skák­áhrifa­valdar, skákfólk sem streymir sínum skákum á vefnum og er með milljónir fylgjenda á samfélags­miðlum. Vignir Vatnar vill horfa nær.

„Það er alltaf verið að reyna að fá mig til að streyma. Mig langar frekar að vera skák­áhrifa­valdur á Íslandi. Ég hef engan áhuga á að verða frægur, eitthvað stjarnfræði­lega frægur. Það er glatað. Ég vil bara að fólk þekki mig smá á Íslandi fyrir skák, það er frábært fyrir mig. Þetta er frábært sem þau [skák­áhrifavaldarnir] gera, fyrir skákina, að dæla inn Youtube-vídeóum. Ég held ég stefni ekki í þann pakka.“

„Þú vilt þá frekar vera næsti Jóhann Hjartarson en næsti Magnus Carlsen?“

„Já, þetta er mjög orðað hjá þér. Jóhann fór í lögfræðina, ég geri það sennilega ekki en ég er til í að vera eins og Jóhann upp á það að eiga fjöl­skyldu og vera hamingju­samur. Hann teflir ennþá og hefur ógeðslega gaman af því. Hann elskar þetta ennþá.“ „Það er æðislegt að horfa á hann, bara fyrir mig. Hann áttar sig ekki á því hvað það gerir mikið fyrir mig að sjá hann svona glaðan í þessu. Hamingju­samur skákmaður. Þeir eru oft ekkert mjög hamingju­samir þessi skákmenn sem eru 16 tíma á dag að gera ekkert annað, orðum það svoleiðis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim