InnlentVill nýtt ártal fyrir landnám Íslands: „Nú vitum við að það er dómadagsbull að landnám hófst 874“ „Árið 1974 var haldið upp á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar með pompi og pragt. Minnispeningar voru slegnir og ættjarðarlög sungin á Landsbankatúninu (sem í þá daga kallaðist Arnarhóll).“ Þannig byrjar færsla Kristins Hrafnssonar á Facebook í morgun. Í henni fullyrðir hann að það sé „dómadagsbull“ að landnámið hafi hafist 874. Þorvaldur Friðriksson fornleifafræðingur gaf út tímamótabók fyrir síðustu jól sem...
InnlentInga ósátt við athugasemdir um Flokk fólksins: „Það virðist algjört aukaatriði hjá „góða fólkinu““ Inga Sæland kvartar undan ósmekklegum athugasemdum um Flokk fólksins á Facebook eftir að flokkurinn samþykkti hið umdeilda útlendingafrumvarp á Alþingi. Illugi Jökulsson rithöfundur og fjölmiðlamaður birti í gær færslu á Facebook þar sem hann benti á að allir þingmenn Flokks fólksins hafi greitt atkvæði með útlendingafrumvarpi dómsmálaráðherra. Færslan vakti mikla athygli og fjölmargir hneiksluðust á flokknum í athugasemdum en þó...
InnlentPöddufullur einstaklingur ruglaðist á íbúð og fékk gistingu hjá lögreglunni Nóttin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt dagbók hennar. Mikið var um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna en alls voru átta bifreiðar stöðvaðar vegna gruns um slíkt athæfi, víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Þá var stútungsfullur einstaklingur til vandræða á veitingastað í hverfi 105. Var hann það slompaður að hann var óviðræðuhæfur og neitaði að yfirgefa veitingastaðinn....
InnlentTveggja milljarða króna hagnaður af Bláa lóninu: „Áætlanir gera ráð fyrir áframhaldandi bata“ Bláa lónið hagnaðist um tæpa tvo milljarða króna árið 2022; mikill viðsnúningur eftir taprekstur árin 2020-2021, en þetta kemur fram á vb.is. Bláa lónið hagnaðist um 13,5 milljónir evra árið 2022, eða sem nemur 2 milljörðum króna, samkvæmt ársreikningi sem er nýbirtur. Tapaði félagið 4,8 milljónum evra árið 2021. Þótt viðsnúningurinn hafi verið mikill hyggst Bláa lónið ekki greiða út...
InnlentGuðrún segir ráðherraskiptin yfirvofandi: „Þau verða á vormánuðum“ Oddviti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, Guðrún Hafsteinsdóttir, hlakkar til að setjast í ráðherrastól, eins og henni hefur verið lofað af flokksforystunni; þó veit Guðrún ekki hvenær það gerist. Greint var frá því eftir síðustu kosningar að Guðrún myndi taka við dómsmálaráðuneytinu af Jóni Gunnarssyni átján mánuðum eftir kosningar. Það er því sérkennilegt að enn er alls óljóst hvenær ráðherraskiptin munu eiga...
InnlentYfirlýsing frá Gumma Ben: „Eftir símtal þeirra á milli ákveður hann að ráðast á Albert“ Ég hef nánast setið á strák mínum allt frá ráðningu Arnars Þór Viðarssonar þrátt fyrir að hafa ýmislegt við framkomu hans á fjölmiðlafundum að athuga eftir að hann tók til starfa. Ég viðurkenni þó að ég hafði samband við Guðna Bergsson, þáverandi formann á sínum tíma, og bað hann að finna hjálp fyrir AÞV (Arnar Þór Viðarsson) til að undirbúa...
InnlentHljóp Garðabær á sig varðandi Miðgarð? KSÍ tekur ekki ákvörðun um vallarleyfið fyrr en á mánudaginn Svo virðist sem Garðabær hafi hlaupið á sig á dögunum þegar samskiptastjóri bæjarins svaraði spurningum Mannlífs um íþróttamannvirkið Miðgarð en þar fullyrðir hann að KSÍ væri búið að leyfa keppnisleiki efstu deilda knattspyrnunnar, í Miðgarði. Sjá einnig: Miðgarður kominn með leyfi til að hýsa leiki í efstu deildum: „Það liggur fyrir frá KSÍ“ Samkvæmt KSÍ er ekki búið að gefa...
InnlentGæsluvarðhaldið framlengt Lögreglan segir í tilkynningu að gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt hafi verið í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars. Maðurinn er grunaður um að hafa hleypt af skoti inni á Dubliners í miðborg Reykjavíkur sl. sunnudagskvöld. Hann var handtekinn daginn eftir og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. mars, en varðhaldið hefur nú verið framlengt eins og áður...
InnlentLögreglan lýsir eftir Harijs Graik – Ekki talinn hættulegur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Harijs Graikste, 28 ára, frá Lettlandi, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Lettlands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Harijs er ekki talinn hættulegur. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Harijs, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna...
InnlentSegir upplýsingaleyndina um Lindarhvol ólöglega:„Vil ekki trúa að að þetta sé einkaákvörðun Birgis“ Þingmaðurinn Jóhann Páll Jóhannsson segir á Facebokk-síðu sinni að „leyndin yfir greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf. er svo farsakennd, illa rökstudd og niðurlægjandi fyrir Alþingi að ég vil helst ekki trúa því að um sé að ræða einkaákvörðun Birgis Ármannssonar þingforseta.“ Segir að fyrir liggji „að þann 22. apríl 2022, skömmu eftir að forsætisnefnd ákvað að birta greinargerðina að...
InnlentFrosti Logason sakar Eddu Falak um lygar: „Hún hefur aldrei unnið í stórum fjárfestingabanka“ Frosti Logason kom með „sprengju“ í nýjasta hlaðvarpsþættinum Harmageddon rétt í þessu en þar staðhæfir hann að Edda Falak, blaðamaður á Heimildinni og þáttastjórnanda Eigin Konur hlaðvarpsins, hafið logið í fjölmiðla að hún hafi unnið í dönskum fjárfestingabanka, þar sem hún hefði orðið fyrir kynbundnu áreiti. Frosti Logason Photo / Facebook Í myndbroti úr þættinum sem birtist á YouTube fer...
InnlentFerðafélag Íslands saklaust af ásökunum yfirtökufólks: Rétt viðbrögð við áreitismálum Ferðafélag Íslands er saklaust af þeim grófu ávirðingum sem hópur tengdur Önnu Dóru Sæþórsdóttur, fyrrverandi forseta félagsins, hefur haldið á lofti. Umrætt fólk hélt því fram að fararstjórar og stjórnarmenn hefðu orðið uppvísir að alvarlegum brotum gegn umbjóðendum sínum. Niðurstaðan er áfellisdómur yfir forsetanum fyrrverandi. Í úttekt sálfræðistofunnar Lífs og sálar er farið ítarlega í gegnum ávirðingarnar og þau mál...