Lögreglan segir í tilkynningu að gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt hafi verið í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars.
Maðurinn er grunaður um að hafa hleypt af skoti inni á Dubliners í miðborg Reykjavíkur sl. sunnudagskvöld.
Hann var handtekinn daginn eftir og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. mars, en varðhaldið hefur nú verið framlengt eins og áður sagði.
Rannsókn málsins miðar vel. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir