Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Hljóp Garðabær á sig varðandi Miðgarð? KSÍ tekur ekki ákvörðun um vallarleyfið fyrr en á mánudaginn

Knattspyrnuvöllurinn í Miðgarði
Knatt­spyrnu­völl­ur­inn í Miðgarði Mynd: Verkís

Svo virðist sem Garðabær hafi hlaupið á sig á dögunum þegar samskipta­stjóri bæjarins svaraði spurningum Mannlífs um íþrótta­mannvirkið Miðgarð en þar fullyrðir hann að KSÍ væri búið að leyfa keppnis­leiki efstu deilda knatt­spyrnunnar, í Miðgarði.

Sjá einnig: Miðgarður kominn með leyfi til að hýsa leiki í efstu deildum: „Það liggur fyrir frá KSÍ“

Samkvæmt KSÍ er ekki búið að gefa grænt ljós á að leika megi knattspyrnu­leiki í húsinu í efstu deildum knatt­spyrnunnar. Slík ákvörðun verður tekin á mánudaginn. „Fundur verður hjá mannvirkja­nefndinni næst­komandi mánudag, þar sem vallar­leyfin verða afgreidd,“ sagði Unnar Stefán Sigurðsson, formaður mannvirkja­nefndar Garða­bæjar í svari við spurningu Mannlífs um málið.

Í fyrra sögðu yfirvöld Garða­bæjar að aldrei hafi verið ætlunin að byggja keppnis­höll fyrir efstu deildir knatt­spyrnunnar heldur hafi húsið aðeins verið ætlað fyrir æfingar og æfinga­leiki, auk annarrar þjónustu sem þangað er hægt að sækja. Lofthæð fullgilds knattspyrnu­vallar þarf að vera 20 metrar að lágmarki en Miðgarður er aðeins 14 metrar. Horft hefur verið framhjá þessu hjá efstu deild kvenna en hingað til hefur ekki verið gefið leyfi á leiki í efstu deild karla. Þá vakti það gremju margra og hlátur sumra, að áhorfenda­stæðið, sem byggt er fyrir 800 manns, sé þannig byggt að ekki sést nema 80-85 prósent af vellinum, sitji maður í stæðinu. Bæjar­yfirvöld gáfu þau svör er DV spurði út í málið, að húsið hafi einmitt ekki verið hugsað sem keppnishús, heldur einungis til æfinga og því hafi áhorf­endur verið látnir mæta afgangi.

Ekki er hægt að fullyrða um að KSÍ hafi ekki gefið Garðabæ einhversskonar loforð um að leyfið fáist á fundinum á mánudaginn en miðað við svör formanns mannvirkja­nefndar er ekkert sem bendir til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim