Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Miðgarður kominn með leyfi til að hýsa leiki í efstu deildum: „Það liggur fyrir frá KSÍ“

Miðgarður kominn með leyfi til að hýsa leiki í efstu deildum: „Það liggur fyrir frá KSÍ“
Knatt­spyrnu­völl­ur­inn í Miðgarði Mynd: Verkís

Dýrasta knatt­spyrnu­hús lands­ins, Mið­garður er orðið gjald­gengt til að hýsa knatt­spyrnu­leiki í efstu deild karla og kvenna í knatt­spyrnu, en hingað til hefur Garðabær sagt húsið vera byggt til æfinga og ann­arra nota.

Fyrri fréttir

Í frétt DV um áhorf­enda­stæði Miðgarðs í apríl í fyrra var sagt frá því að áhorf­endur sjái ekki nema um 85 pró­sent af keppn­is­vell­inum í höll­inni og í annarri frétt frá DV er talað um að hin 18.200 fer­metra höll, sem kost­aði um fjóra millj­arða króna, upp­fyllti ekki skil­yrði til þess að hægt væri að keppa í henni í efstu deildum Íslands. Til þess væri loft­hæðin of lág eða 14 metrar en lág­marks­hæð fyrir keppn­is­völl eru 20 metrar. Í Dr. Football-hlað­varps­þætt­inum var hneiksl­ast á þessu en þar lét Hjörvar Haf­liða­son hafa eftir sér eft­ir­far­andi orð: „Garð­bæ­ingar byggðu dýr­ustu höll sög­unnar og það má ekki keppa í henni. Geta þessir jóla­sveinar ekki gert neitt rétt í Garða­bænum?“

Séð frá hinu sér­kenni­lega áhorf­enda­stæði

Þessu svör­uðu bæj­ar­yf­ir­völd og sögðu að aldrei hafi verið ætl­unin að byggja keppn­is­höll fyrir efstu deildir knatt­spyrn­unnar heldur hafi húsið aðeins verið ætlað fyrir æfingar og æfinga­leiki, auk ann­arrar þjón­ustu sem þangað er hægt að sækja. Þá hafi verið ákveðið að láta áhorf­endur mæta afgangi því áherslan væri á iðk­endur og þjálf­ara. Í svörum frá bænum sem DV fékk, kom fram að bygg­ing­areit­ur­inn hafi verið svo tak­mark­andi fyrir breidd sal­ar­ins að þetta hafi verið eina raun­hæfa lausnin.

Viðsnúningur

Nú virð­ist hins­vegar komið annað hljóð í skrokk­inn ef svo má að orði kom­ast. Í svörum bæj­ar­ins við spurn­ingum Mannlífs um knatt­spyrnu­höll­ina kom meðal ann­ars fram að Mið­garður sé gjald­gengur fyrir leiki í efstu deildum knatt­spyrn­unnar. Spurn­ingin hljóð­aði svo: „Telur Garðabær kostn­að­inn við bygg­ingu og hönnun Mikla­garðs ásætt­an­lega, í ljósi þess að ein­ungis er hægt að bjóða upp æfingar í hús­inu en ekki keppn­is­leiki í efstu deildum?“ Svar barst frá Ástu Sigrúnu Magn­ús­dóttur, sam­skipta­stjóra Garða­bæjar: „Það liggur fyrir frá KSÍ að það er hægt að spila knatt­spyrnu­leiki í Miðgarði í öllum flokkum á öllum getu­stigum, þar með talið meist­ara­flokkum karla og kvenna í öllum deildum. Nú þegar hefur fjöldi kapp­leikja farið fram í hús­inu, þar á meðal lands­leikir. Áhorf­enda­sæti eru fyrir rúm­lega 800 manns.“

Mannlíf reyndi að ná sam­bandi við for­mann og stjórn KSÍ til að fá þetta stað­fest en hefur ekki fengið nein svör, hvorki í tölvu­pósti né í gegnum síma.

Myglan á undanhaldi

Jarð­vegs­sveppur greind­ist undir gervi­gras­inu í Miðgarði í októ­ber í fyrra, eftir mikið vatns­veður. Vel hefur tek­ist að halda svepp­inum í skefjum en von er á að skemmt efni undir gervi­gras­inu verði fjar­lægt von bráðar. Mannlíf spurði Garðabæ eft­ir­far­andi spurn­ingu: „Geturðu sagt mér hvað lek­inn sem varð í hús­inu í fyrra, sem olli myglu í gervi­gras­inu, hefur kostað Garðabæ? Hvernig ganga við­gerðir á gervi­gras­inu? Hver ber ábyrgð á þeim galla sem olli lek­anum sem varð í óveðri?“

Í svari sam­skipta­stjóra bæj­ar­ins kemur fram að kostn­að­ur­inn sem fram er kom­inn sé til­tölu­lega lágur eða um fjórar millj­ónir en enn á eftir að skipta á gras­inu.

„Eftir að jarð­vegs­svepp­ur­inn greind­ist undir gervi­gras­inu hefur það verið úðað með sótt­hreinsi­efnum á 6 vikna fresti auk þess sem tekin hafa verið ryk­sýni úr and­rúms­lofti í knatt­spyrnusalnum til að meta hvort gró eru í and­rúms­loft­inu. Ljóst er að með þessum ráð­stöf­unum hefur tek­ist að halda sveppnum í skefjum og engin önnur merki um myglu komið fram. Kostn­aður vegna þessa, það er sýna­taka, fram­kvæmdir og hreinsun nema tæpum 4 millj­ónum króna (sam­tals fyrir árin 2022 og það sem af er ári 2023).  Fjar­lægja þarf skemmt efni undan gervi­gras­inu og hreinsa eftir það sam­kvæmt þeim leið­bein­ingum og verk­lagi sem Mannvit heldur utan um fyrir Garðabæ.

Stefnt er að því að gera það þegar knatt­spyrnu­ver­tíðin hefst fyrir alvöru utan­húss og verður því lokið fyrir haustið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð