Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Yfirlýsing frá Gumma Ben: „Eftir símtal þeirra á milli ákveður hann að ráðast á Albert“

Ég hef nánast setið á strák mínum allt frá ráðningu Arnars Þór Viðars­sonar þrátt fyrir að hafa ýmislegt við framkomu hans á fjölmiðla­fundum að athuga eftir að hann tók til starfa.

Ég viðurkenni þó að ég hafði samband við Guðna Bergsson, þáverandi formann á sínum tíma, og bað hann að finna hjálp fyrir AÞV (Arnar Þór Viðarsson) til að undirbúa hann betur undir blaðamanna­fundi.

Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­ari karla­lands­liðs Íslands í fót­bolta.

Megin­ástæðan fyrir því að ég hef ekki tjáð mig opinber­lega fyrr er að ég er íþrótta­fréttamaður.

En ég er fyrst og fremst faðir Alberts Guðmunds­sonar sem hefur verið viðriðinn lands­liðið undan­farin ár.

Mér var hins vegar nóg boðið í gær eftir síðustu ummæli AÞV. Rétt er að taka fram að ég geri enga kröfu á að Albert eigi að vera í landsliðs­hópi. AÞV var ráðinn til að stjórna því og getur gert hvað sem honum sýnist í þeim efnum.

En enda­lausar árásir að heiðri og persónu Alberts þegar hann er ekki í hópnum mun ég ekki líða lengur og þykir mér með ólíkindum að Knattspyrnu­sambandið láti þetta viðgangast.

Albert Guð­munds­son.

Í síðustu viku bjallaði AÞV í Albert og ræddi mögulega endurkomu Alberts í lands­liðið. Þeir áttu fínt samtal, samkvæmt Alberti, en niður­staðan var að Albert taldi best að hann gæfi ekki kost á sér í þetta verkefni af ýmsum ástæðum.

AÞV heldur því fram að eina ástæðan sé að Albert neiti að vera varamaður sem er ekki rétt.

„Ég vel ekki leikmenn sem vilja ekki vera á bekknum,“ sagði Arnar við fjölmiðla.

Fjölskyldu­ástæður spiluðu stóra rullu í ákvörðun Alberts ásamt stöðu Genoa í ítölsku deildinni og það veit AÞV mæta vel en ákveður að láta leik­manninn líta illa út enn og aftur.

Þess má líka geta að Albert hefur aldrei tjáð sig um þjálf­arann og persónuna AÞV þrátt fyrir ótal tækifæri til að fara í leðju­slaginn sem AÞV virðist elska og fjöl­miðlar apa upp eftir honum. Ég kalla þetta leikþátt og ég stend við það þar sem ég er þess fullviss að AÞV hafði engan áhuga á að velja Albert en taldi sig nauð­beygðan þar sem Alberti hefur gengið vel á Ítalíu að undan­förnu.

Eftir símtal þeirra á milli ákveður hann að ráðast á Albert og ekki í fyrsta sinn sem þjálf­arinn reynir að gera lítið úr honum eftir að hafa tilkynnt hóp sinn.

Ég veit ekki hvaða belgísku þjálfara­námskeið AÞV hefur setið en ég vona að þessi nálgun sé ekki kennd þar né á öðrum námskeiðum.

Persónu­lega hefði ég tilkynnt í september 2022 að ég myndi aldrei spila fyrir Ísland aftur undir stjórn AÞV eftir árásirnar frá þjálf­aranum en sem betur fer er ég ekki Albert og hann er alltaf stoltur að fá að spila fyrir Ísland.

Ég óska íslenska liðinu velgengni í verk­efninu sem framundan er og þar af leiðandi þjálf­aranum en vona líka innilega að hann læri að umgangast fólk sem er mikil­vægast í þjálfun.

Gummi Ben.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim