Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Vill nýtt ártal fyrir landnám Íslands: „Nú vitum við að það er dómadagsbull að landnám hófst 874“

Málverk af Keltum
Málverk af Keltum Mynd: Neskirkja

„Árið 1974 var haldið upp á 1100 ára afmæli Íslands­byggðar með pompi og pragt. Minnis­peningar voru slegnir og ættjarðarlög sungin á Landsbanka­túninu (sem í þá daga kallaðist Arnarhóll).“ Þannig byrjar færsla Kristins Hrafns­sonar á Facebook í morgun. Í henni fullyrðir hann að það sé „dómadags­bull“ að landnámið hafi hafist 874.

Þorvaldur Friðriksson fornleifa­fræðingur gaf út tímamótabók fyrir síðustu jól sem ber heitið Keltar á Íslandi. Þar bíður hann upp á nýja sýn á Íslands­sögunni en það er þáttur Kelta á Íslandi. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks hefur að öllum líkindum lesið þá bók, líkt og sjá má á nýjustu færslu hans á Facebook. Þar viðrar hann þá ósk sína að þjóðin sameinist um nýtt ártal fyrir landnám Íslands og velur töluna 727 af ýmsum ástæðum. Framhald færslunnar má lesa hér að neðan.

„Nú vitum við að það er dómadags­bull að landnám hófst 874 enda er talan sótt í Landnámu, pólitískt áróðursrit sem einkum var ætlað að þurrka yfir þá sögu að fólk af keltneskum uppruna nam Ísland miklu fyrr.Hvursu miklu fyrr er erfitt að segja til um, en ég legg til að þjóðin sameinist um giskið 727. Það sem styður þessa tölu er að hún er sannarlega innan ramma vísbendinga úr fornleifa­rannsóknum, í annan stað er þetta ákaflega falleg og auðmunanleg tala og í þriðja lagi þurfum við einhvern stór­viðburð innan fárra ára til að blása í okkur þjóðernis­anda. Við getum af þessu tilefni bætt inn ótal sögum sem viðauka í sögubækur skóla­barna og talað um keltnesku öldina sem hófst á þessu land­námsári 727.Við höldum svo mikla hátíð eftir fjögur ár eða 2027 og fögnum 1300 ára afmæli Íslands­byggðar.Að sjálfsögðu þarf að slá minnis­pening.Ég mun fagna því mjög að geta státað af því að halda bæði upp á 1100 og 1300 ára afmæli Íslands­byggðar á einu og sama lífs­skeiðinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim