Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Ferðafélag Íslands saklaust af ásökunum yfirtökufólks: Rétt viðbrögð við áreitismálum

©Kristinn Ingvarsson Anna Dóra Sæþórsdóttir
©Kristinn Ingv­ars­son Anna Dóra Sæþórs­dóttir Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ferða­félag Íslands er saklaust af þeim grófu ávirðingum sem hópur tengdur Önnu Dóru Sæþórs­dóttur, fyrr­verandi forseta félagsins, hefur haldið á lofti. Umrætt fólk hélt því fram að farar­stjórar og stjórnar­menn hefðu orðið uppvísir að alvarlegum brotum gegn umbjóðendum sínum. Niður­staðan er áfellis­dómur yfir forsetanum fyrr­verandi.

Í úttekt sálfræði­stofunnar Lífs og sálar er farið ítarlega í gegnum ávirðingarnar og þau mál sem nefnd voru sem dæmi um yfir­hylmingu og brot. Niður­staðan er sú að félagið hafi staðið rétt að úrlausn mála. Sigrún Valbergs­dóttir, fráfar­andi forseti Ferða­félags Íslands, upplýsti á fjölmennum aðalfundi félagsins í gærkvöld að með þessari niður­stöðu væri komið nýtt upphaf og ömurlegum tíma innihalds­lausra ásakana lokið.

Sigrún Val­bergs­dóttir.

„Í febrúar 2023 var svo endur­skoðað það fyrir­komulag og samþykkt af hálfu stjórnar FÍ,
uppfærð viðbragðs­áætlun, þar sem fram kemur að þrír utan­aðkomandi aðilar skipi fagteymi sem vísi málum í úttekt hjá fagaðila ef ástæða þykir til. Telur undir­rituð að slík skipan mála sé mjög af hinu góða og tryggi betur faglega fjarlægð og hlutleysi í þessum viðkvæmu og flóknu málum og betri sátt ríki um niður­stöður. Að því sögðu er ekki verið að gefa í skyn að hlutleysi hafi verið ábótavant í þeim málum sem hér hefur verið fjallað um.“
Undir þetta ritar Þórkatla Aðal­steins­dóttir, sálfræðingur hjá Lífi og sál.“

Sigrún Valbergs­dóttir fagnar niður­stöðunni.

„Þessum niður­stöðum fögnum við að sjálfsögðu um leið og við gerum okkur ljóst að það er framundan mikil vinna við að endur­heimta trúverðug­leika félagsins eftir neikvæða umræðu síðast liðið haust. En til þess er stjórnin reiðubúin – öll sem eitt – í samstarfi við félags­menn. Án þeirra er ekkert félag,“ sagði hún á fundinum í gærkvöld.

Harðskeytt umfjöllun

Gríðarleg aðför var gerð að félaginu og stjórn­endum þess síðastliðið haust. Frétta­blaðið birti gagnrýnis­laust forsíðu­viðtal við Önnu Dóru þar sem hún bar starfs­fólk og stjórn félagsins alvarlegum sökum og tilgreindi að farar­stjórar hefðu framið alvarleg brot. Blaða­maðurinn Björk Eiðs­dóttir tók viðtalið. Fylgjendur Önnu Dóru fengu mikið pláss í fjöl­miðlum með ávirðingar á hendur félaginu.

Gísli Marteinn, sjón­varps­maður. Mynd/Skjáskot. Vísir

Sem dæmi um harðskeytta umfjöllun má nefna að Gísli Marteinn Baldursson uppnefndi félagið í sjónvarps­þættinum Vikunni sem Feðra­félag Íslands. Kristín I Páls­dóttir, formaður kven­félagsins Rótarinnar, gekk hvað lengst í ásökunum á stjórn og farar­stjóra. Hún bar upp vantraust á stjórnina á fjölmennum félags­fundi en tillagan fékk ekki hljóm­grunn. Aftur á móti samþykkti gríðar­legur meirihluti fundar­manna trausts­yfirlýsingu við stjórnina. Kristín sagði sig úr félaginu áður en til aðal­fundar kom.

Átakasagan

Átökin innan Ferða­félags Íslands hófust á síðasta ári. Þáverandi forseti félagsins, Anna Dóra Sæþórs­dóttir, vann leynt og ljóst að því að koma Páli Guðmunds­syni, framkvæmda­stjóra félagsins, úr starfi með aðferðum sem túlkaðar voru sem einelti. Enginn annar innan níu manna stjórnar félagsins var sammála því að reka framkvæmda­stjórann sem um árabil hafði skilað félaginu með hagnaði og í farsælum rekstri.

Á fundi í höfuð­stöðvum Ferða­félagsins voru Róbert Marshall, þáverandi farar­stjóri Ferða­félags Íslands, og Þórey Vilhjálms­dóttir ráðgjafi mætt og sögðust vera þar í umboði Önnu Dóru. Tvímenningarnir sátu fyrir framkvæmda­stjóranum við vinnustað hans og kröfðust fundarins. Þórey er þekkt sem aðstoðar­maður Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur dómsmála­ráðherra á þeim tíma sem Lekamálið kom upp. Það mál kostaði ráðherrann embættið. Á fundinum settu tvímenningarnir fram þá kröfu að Páll viki úr starfi sínu.

Þórey Vil­hjálms­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Í fram­haldinu fengu þau fund með fjórum stjórnar­mönnum og kröfðust þess, með undir­liggjandi hótunum, að Páll yrði látinn fara, að öðrum kosti yrðu trúnaðar­upplýsingar úr starfi félagsins birtar opinber­lega. Síðasta vor gekk svo mikið á í samskiptum Páls og Önnu Dóru að hann hafði við orð að hann gæti ekki sinnt starfi sínu við þær aðstæður og myndi láta af störfum frekar en sæta áfram­haldandi áreiti Önnu Dóru.

Nokkru eftir fundinn í höfuð­stöðvum Ferða­félagsins bauð Anna Dóra Róberti Marshall starf framkvæmda­stjóra, samkvæmt heimildum Mannlífs. Þetta gerðist í hálendis­ferð á vegum Ferða­félagsins. Anna Dóra gat ekki staðið við boð sitt  því aðrir í stjórn félagsins féllust ekki á að Páll hætti störfum. Úr varð að stjórnin skipaði forsetanum að láta framkvæmda­stjórann og aðra á skrif­stofu félagsins í friði og hætta eineltinu. Þetta má í raun túlka sem nálgunar­bann. Jafnframt kærði Páll Önnu Dóru fyrir einelti á hendur sér og týndi til fjölmörg dæmi. Upp úr þessu var ríkjandi stjórnar­kreppa í félaginu.

Sáttin

Framganga Önnu Dóru gagnvart Páli þótti vera grafal­varleg. Síðastliðið sumar var leitað sátta í málinu og bað hún Pál um að draga mál sitt til baka gegn því að málið yrði leyst á farsælan hátt með hagsmuni Ferða­félagsins að leiðar­ljósi. Lögmenn þeirra gerðu sátt um þetta mál. Páll skilaði skriflegri sátt frá sinni hlið en forsetinn munnlegri. Sá skilningur var uppi að Anna Dóra myndi hætta með reisn og ekki yrði rætt frekar um eineltið. Í fram­haldinu dró Páll til baka kæruna á hendur forsetanum í þeirri trú að samkomu­lagið héldi og þannig staðið vörð um orðspor félagsins.

Páll Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri.

Grun­semdir spruttu svo um að Anna Dóra hygðist ekki standa við samkomu­lagið. Rætt var um að bera þar upp vantrausts­tillögu á Önnu Dóru sem forseta ef hún stæði ekki við afsögnina sem sáttin hafði verið gerð um. Grun­semdir reyndust síðan réttar og Anna Dóra sagði af sér embætti í lok september síðast liðins með miklum hvelli. Lýsti hún afsögn sinni sem afleiðingu þess að innan félagsins hefði þrifist kynferðislegt áreiti án þess að brugðist hefði verið við. Stjórn félagsins hefur upplýst að sex mál af þessum toga hafi komið upp á undan­förnum fimm árum. Öll hafi þau verið leidd til lykta, ýmist með áminningu, skriflegri áminningu, tiltali, eða afsögn úr stjórn eða starfi. Anna Dóra nefndi í engu einelti sitt á hendur framkvæmda­stjóranum.

Hallarbyltingin

Nokkru fyrir afsögnina kynntu Róbert Marshall og Brynhildur Ólafs­dóttir, eiginkona hans, nýtt félag um útivist. Félagið nefna þau Útihreyfinguna. Bæði hafa þau starfað um langt árabil innan Ferða­félagsins við ýmis verkefni. Hæst ber þar Landvætta­prógrammið sem hefur verið fjölsótt. Þegar nýja hreyfingin var kynnt sögðu þau jafnramt lausum störfum sínum hjá Ferða­félaginu. Um áramót fór síðan Kolbrún Björns­dóttir, farar­stjóri Ferða­félags Íslands, út úr félaginu með verkefni sem tengdust kvenna­göngum.

Róbert Marshall átti að verða fram­kvæmda­stjóri.

Heimildar­menn Mannlífs töldu að nauðsynlegt væri að setja hina nýju hreyfingu í samhengi við atburða­rásina í sumar og afsögn Önnu Dóru. Þetta fólk hafi reynt hallar­byltingu í Ferða­félaginu en þegar það mistókst hafi þau ákveðið að kljúfa sig frá félaginu og taka með sér verkefnin. Aðrir sem hafa verið viðloðandi málið eru Karen Kjartans­dóttir, almanna­tengill og fyrr­verandi frétta­maður, og Magnús Orri Schram, eigin­maður Þóreyjar. Magnús Orri hyggur á hótel­rekstur í Þjórs­árdal.

Tómas í sigtinu

Anna Dóra lýsti á sínum tíma framgöngu Tómasar Guðbjarts­sonar, stjórnar­manns og farar­stjóra, sem hafi sótt fast að fá Helga Jóhannesson, stjórnar­mann aftur til liðs við félagið.

Tómas Guð­bjarts­son læknir.

Helgi sagði af sér eftir að ásakanir komu fram í fjöl­miðlum á hendur honum. Tómas hefur rekið til baka þessi ummæli og segir að hann hafi aðeins beðið um að Helgi fengi að hitta stjórnina og skýra sín mál.

Á aðal­fundinum í gærkvöld kom fram mikill einhugur. Enginn þeirra sem gagnrýnt hafa stjórn og starfs­fólk félagsins voru staddir á fundinum. Ólöf Sívertssen, sem setið hefur í stjórn, var kosin sem forseti félagsins. Þá komu inn tveir nýir stjórnar­menn í stað Önnu Dóru og Margrétar Hallgríms­dóttur. Það eru þær Salvör Nordal og Elín Björk Jónasdóttir.

Ný stjórn FÍ. Myndin er á FB síðu Gísla Más, stjórn­ar­manns. F.v. Pétur Magn­ús­son, Elín Björk Jón­as­dóttir, ný í stjórn, Sigrún Val­bergs­dóttir, Gísli Már Gíslason, Ólöf Kristín Sívert­sen, nýr for­seti FÍ, Tómas Guð­bjarts­son, Páll Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri, Sigurður Ragn­ars­son og Gestur Pét­urs­son. Á mynd­ina vantar Salvöru Nordal, sem einnig er ný í stjórn. Í bak­sýn er svo mynd af Skag­fjörs­skála, en stærsta verk­efni FÍ framundan er að end­ur­nýja hann frá grunni. Nýr skáli með sama útliti mun rísa á grunni gamla skál­ans.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim