Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hallarbylting í Ferðafélaginu átti að færa Róberti forstjórastólinn: Anna Dóra kærð fyrir einelti

Hallarbylting í Ferðafélaginu átti að færa Róberti forstjórastólinn: Anna Dóra kærð fyrir einelti
©Kristinn Ingv­ars­son Anna Dóra Sæþórs­dóttir Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Átökin innan Ferða­fé­lags Íslands eiga sér margra mán­aða aðdrag­anda. Forseti félags­ins, Anna Dóra Sæþórs­dóttir, vann leynt og ljóst að því að koma Páli Guð­munds­syni úr starfi fram­kvæmda­stjóra félags­ins með aðferðum sem túlk­aðar voru sem ein­elti. Enginn annar innan níu manna stjórnar félags­ins var sam­mála því að reka fram­kvæmda­stjór­ann sem um ára­bil hefur skil­aði félag­inu með hagn­aði og í far­sælum rekstri.

Tvíeyki forsetans

Á fundi í höf­uð­stöðvum Ferða­fé­lags­ins að frum­kvæði for­set­ans voru Róbert Marshall og Þórey Vil­hjálms­dóttir mætt og sögð­ust vera þar í umboði Önnu Dóru. Tví­menn­ing­arnir sátu fyrir fram­kvæmda­stjór­anum við vinnu­stað hans og kröfð­ust fund­ar­ins. Þórey er þekkt sem aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur dóms­mála­ráð­herra á þeim tíma sem Leka­málið kom upp. Það mál kost­aði ráð­herr­ann emb­ættið. Á fund­inum settu tví­menn­ing­arnir fram þá kröfu að Páll viki úr starfi sínu.

Þórey Vil­hjálms­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Í fram­hald­inu fengu þau fund með fjórum stjórn­ar­mönnum og kröfð­ust þess, með und­ir­liggj­andi hót­unum, að Páll yrði lát­inn fara, að öðrum kosti yrðu trún­að­ar­upp­lýs­ingar úr starfi félags­ins birtar opin­ber­lega. Síðasta vor gekk svo mikið á í sam­skiptum Páls og Önnu Dóru að hann hafði við orð að hann gæti ekki sinnt starfi sínu við þær aðstæður og myndi láta af störfum frekar en sæta áfram­hald­andi áreiti.

Nokkru eftir fund­inn í höf­uð­stöðvum Ferða­fé­lags­ins bauð Anna Dóra Róberti Marshall starf fram­kvæmda­stjóra, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Þetta gerð­ist í hálend­is­ferð á vegum Ferða­fé­lags­ins. Anna Dóra gat ekki staðið við boð sitt  því aðrir í stjórn félags­ins féllust ekki á að Páll hætti störfum. Úr varð að stjórnin skip­aði for­set­anum að láta fram­kvæmda­stjór­ann og aðra á skrif­stofu félags­ins í friði og hætta ein­elt­inu. Þetta má í raun túlka sem nálg­un­ar­bann. Jafn­framt kærði Páll Önnu Dóru fyrir ein­elti á hendur sér og týndi til fjöl­mörg dæmi. Upp úr þessu var ríkj­andi stjórn­ar­kreppa í félag­inu.

Sáttin

Fram­ganga Önnu Dóru gagn­vart Páli þótti vera grafal­var­leg. Í sumar var leitað sátta í mál­inu og hún bað Pál um að draga mál sitt til baka í ljósi þess að málið yrði leyst á far­sælan hátt með hags­muni Ferða­faé­lags­ins að leið­ar­ljósi. Lögmenn þeirra gerðu sátt um þetta mál. Páll skil­aði skrif­legri sátt frá sinni hlið en for­set­inn ekki sinni. Sá skiln­ingur var uppi að Anna Dóra myndi hætta með reisn og ekki yrði rætt frekar um ein­eltið. Í fram­hald­inu dró Páll til baka kæruna á hendur for­set­anum í þeirri trú að sam­komu­lagið héldi og þannig staðið vörð um orð­spor félags­ins.

Páll Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri.

Grun­semdir spruttu svo um að hún hygð­ist ekki standa við sam­komu­lagið. Ákveðið var að stjórn­ar­fundur yrði hald­inn í dag. Rætt var um að bera þar upp van­traust­s­til­lögu á Önnu Dóru ef hún stæði ekki við afsögn­ina sem sáttin hafði verið gerð um. Í morgun varp­aði hún svo sprengj­unni og sagði af sér emb­ætti með miklum hvelli. Lýsti hún afsögn sinni sem afleið­ingu þess að innan félags­ins hefði þrif­ist kyn­ferð­is­legt áreiti án þess að brugð­ist hefði verið við. Vísaði hún meðal ann­ars til nýlegs máls, þess efnis, þar sem stjórn­ar­maður hefði í hóp­ferð hegðað sér ósæmi­lega án þess að far­ar­stjóri hefði brugð­ist við. Eftir því sem næst verður kom­ist er þarna vísað til máls sem upp kom fyrir 16 mán­uðum. Í því máli hafði verið gerð sátt á milli allra sem að mál­inu komu. Stjórn félags­ins hefur upp­lýst að sex mál af þessum toga hafi komið upp á und­an­förnum fimm árum. Öll hafi þau verið leidd til lykta, ýmist með áminn­ingu, skrif­legri áminn­ingu, til­tali, eða afsögn úr stjórn eða starfi. Anna Dóra nefndi í engu ein­elti sitt á hendur fram­kvæmda­stjór­anum.

Hallarbyltingin

Fyrir nokkrum dögum kynntu Róbert Marshall og Bryn­hildur Ólafs­dóttir, eig­in­kona hans, nýtt félag um úti­vist. Félagið nefna þau Úti­hreyf­ing­una. Bæði hafa þau starfað um langt ára­bil innan Ferða­fé­lags­ins við ýmis verk­efni. Hæst ber þar Land­vætta­prógram­mið sem hefur verið fjöl­sótt. Þegar nýja hreyf­ingin var kynnt sögðu þau jafn­ramt lausum störfum sínum hjá Ferða­fé­lag­inu.

Róbert Marshall átti að verða fram­kvæmda­stjóri.

Nokkrir þjálf­arar og far­ar­stjórar sem störf­uðu með þeim fylgdu hjón­unum. „Við erum Róbert og Bryn­hildur, Kjartan, Birna, Ragga, Sandra og mörg, mörg fleiri. Fólk sem kemur úr ólíkum áttum en hefur náð teng­ingu í þjálfun, hreyf­ingu og fjalla­æv­in­týrum und­an­farin ár. Öll illa haldin af hreyfi­ofsa og ævin­týra­þrá,“ segir í kynn­ingu á hreyf­ing­unni sem verður kynnt á fundi annað kvöld.

Heim­ild­ar­menn Mannlífs telja að nauð­syn­legt sé að setja hina nýju hreyf­ingu í sam­hengi við atburða­rás­ina í sumar og afsögn Önnu Dóru. Þetta fólk hafi reynt hall­ar­bylt­ingu í Ferða­fé­lag­inu en þegar það mistókst hafi þau ákveðið að kljúfa sig frá félag­inu og taka með sér verk­efnin. Aðrir sem hafa verið við­loð­andi málið eru Karen Kjart­ans­dóttir, almanna­teng­ill og fyrr­ver­andi frétta­maður, og Magnús Orri Schram, eig­in­maður Þóreyjar. Magnús Orri hyggur á hót­el­rekstur í Þjórs­ár­dal.

Anna í ólgusjó

Í yfir­lýs­ingu Önnu Dóru í morgun lýsir hún fram­göngu Tómasar Guð­bjarts­sonar, stjórn­ar­manns og far­ar­stjóra, sem hafi sótt fast að fá Helga Jóhann­es­son, stjórn­ar­mann aftur til liðs við félagið. Helgi sagði af sér eftir að ásak­anir komu fram í fjöl­miðlum á hendur honum. Tómas hefur rekið til baka þessi ummæli og segir að hann hafi aðeins beðið um að Helgi fengi að hitta stjórn­ina og skýra sín mál.

Tómas Guð­bjarts­son

Anna Dóra stendur ein í þessum ólgu­sjó. Allir aðrir í stjórn félags­ins hafa snúið við henni baki og telja hana hafa orðið óhæfa til að gegna emb­ætti for­set­ans. Vara­for­set­inn, Sigrún Val­bergs­dóttir, hefur tekið við emb­ætt­inu. Sigrún nýtur í senn traust og virð­ingar fyrir ára­löng störf innan félags­ins. Tíminn mun leiða í ljós hvernig félag­inu gengur að leysa úr málum eftir það sem kallað hefur verið aðför for­set­ans. Vel­unn­arar félags­ins fagna því að stjórn­ar­kreppa und­an­far­inna mán­aða er baki og við taki upp­bygg­ing­art­starf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ