InnlentTvisvar sektaður fyrir að aka á 37 kílómetra hraða: „Sitja fyrir borgurunum á ómerktum bíl“ Útvarpsstjarnan Ólafur Páll Gunnarsson er ekki sáttur við að lögreglan sitji fyrir löghlýðnum borgurum: „Ég var sektaður fyrir of hraðan akstur í vikunni sem leið – í miðbænum á Akranesi á 37 km hraða. Ég var líka sektaður á leið til mömmu í kaffi í fyrra á 37.“ Hann bætir við: „Löggan situr fyrir annars löghlýðnum borgurunum á ómerktum bíl...
InnlentUnglingar gómaðir við þjófnað víða um borgina – Stálu gaskútum úr görðum Lögregla gómaði þrjá unglinga í gærkvöldi sem höfðu tekið gaskúta úr görðum ófrjálsri hendi. Atvikið átti sér stað í Grafarvogi en piltarnir eru allir undir lögaldri. Auk þess eru þeir grunaðir um akstur án þess að hafa öðlast réttindi. Málið var unnið í samráði við foreldra og barnaverndaryfirvöld. Fyrr um kvöldið barst lögreglu tilkynning um þjófnað í Kringlunni. Þeir sem...
InnlentOfsaveður í kortunum og appelsínugul viðvörun Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi víðast hvar á landinu um hádegi í dag. Að sögn veðurfræðings mun veðrið versna hratt eftir hádegið. Á Suðurlandi, Suðausturlandi, Vestfjörðum og í Faxaflóa verður viðvörun appelsínugul og gildir hún fram á þriðjudag. Þá hefur ríkislögreglustjóri lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna stöðunnar sem verður á Vestfjörðum, Vesturlandi, Suðurnesjum, Vestmannaeyjum og á Suðurlandi. Þá hefur...
Innlent20 tittlingar og 40 eistu mættu og vonuðust eftir ókeypis síma: „Ja, það var engum þröngvað úr“ Í lok nóvember árið 1995 vakti auglýsing frá Antoni Skúlasyni mikla athygli. Anton boðaði að þeir sem kæmu naktir í verslun hans í Austurveri við Háleitisbraut fengju ókeypis síma. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Eigum til Alkatel-, Nokia-, Panasonic-, Motorola- og Nokia-síma ásamt fylgihlutum. Ekkert bónuskjaftæði, við erum ódýrastir,” sagði í auglýsingunni. Um 20 manns berháttuðu sig í versluninni...
InnlentKatrín ber traust til Aðalsteins: „Sáttasemjari er innan þeirra heimilda sem er að finna í lögum“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ætlar ekki að hvetja til þess að Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara verði vikið frá í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins; líkt og Efling hefur farið fram á. Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari. Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, hefur sent Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra, bréf og óskað eftir fundi í fyrramálið, áður en mál ríkissáttasemjara gegn Eflingu verður dómtekið,...
InnlentGuðlaugur vill að eldsneytisbirgðir dugi í 90 daga: Nægt framboð eldsneytis forsenda öryggis Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur kynnt áform um frumvarp sem tekur til laga um neyðarbirgðir eldsneytis í samráðsgátt stjórnvalda, en þetta kemur fram á Heimildinni. Samkvæmt áformunum á að leggja þá skyldu á söluaðila að þeir viðhaldi jarðefnaeldsneytisbirgðum sem jafngildi notkun til níutíu daga; birgðir hérlendis þurfa að duga í tvo mánuði en auk þess eiga söluaðilar...
InnlentSlæm veðurspá setur fund Guðmundar Inga og Sólveigar Önnu á ís – Kemur til landsins á miðvikudag Félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þarf að fljúga til Kaupmannahafnar fyrr en áætlað hafði verið til að stýra fundi Norrænu ráðherranefndarinnar; vegna þess hefur Guðmundur Ingi frestað fundi sem var fyrirhugaður með Eflingu og því getur ekki orðið af áðurnefndum fundi sem fyrirhugaður var klukkan hálf 9 í fyrramálið. Guðmundur Ingi mun stýra fundum norrænu ráðherranefndarinnar í höfuðborg Baunalands,...
InnlentFrosti hafnar ásökunum Eddu Pétursdóttur: „Gerði ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar“ „Ég lagði aldrei hendur á fyrrverandi kærustu mína ,beitti hana ekki andlegu ofbeldi á meðan á sambandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar eins og haldið er fram,“ skrifar Frosti Logason fjölmiðlamaður á Facebook vegna ásakana Eddu Pétursdóttur, fyrrverandi kærustu sinnar. Edda kom fram í þætti Eddu Falak, Eigin konur, þar sem hún...
InnlentAðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar eru náskyld Miklar deilur eru um miðlunartillögu Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara í deilu Eflingar og SA. Þau Aðalsteinn Leifsson og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar eru náskyld; annar og þriðji liður, en það var skúbbrefurinn Eiríkur Jónsson sem sagði fyrst frá. Eiríkur Jónsson. Án hliðstæðu. Eiríkur hefur það eftir blaðamanninum góðkunna, Sigurði Boga Sævarssyni: Sigurður Bogi Sævarsson. „Þetta var fljótfundið á netinu út...
InnlentSystir Jóns Ólafssonar í Nýdönsk ráðin framkvæmdastjóri Pírata Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Pírata; Kristín er með meistaragráðu í mannréttindalögfræði og BS gráðu í viðskiptafræði; býr yfir mikilli reynslu úr atvinnulífinu og frá félagasamtökum. Kristín hefur undanfarin ár verið að læra um skaðaminnkandi nálgun og úrræði; unnið við það ásamt því að sinna kennslu. Hér áður var hún var áður framkvæmdastjóri Píeta-samtakanna og leiddi af miklum krafti...
InnlentSólveig velgir ráðherra undir uggum: „Ég óska því eftir að þú takir á móti mér að morgni mánudags“ „Í ljósi pólitískrar og stjórnsýslulegrar ábyrgðar þinnar á framlagningu ríkissáttasemjara á svokallaðri miðlunartillögu, svo og á tilhæfulausri kröfu embættisins um afhendingu gagna úr félagaskrá Eflingar, geri ég kröfu um að fá áheyrn þína án tafar,“ skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í harðorðu bréfi sem hún sendir Guðmundi Inga Guðbrandssyni félagsmálaráðherra í gærkvöld. Hún birti bréfið á Facebook í gærkvöld...
InnlentHandknattleikssamband Íslands tekur mestan skellinn – Styrkveiting til HSÍ lækkar á milli ára Í nýútgefni frétt frá Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) segir að samþykktar hafa verið tillögur stjórnar Afreksjóðs ÍSÍ fyrir 2023 og nema styrkveitingar ársins 535 milljónum króna. Í fyrra voru veittar 543 milljónir og hefur því heildarstyrkveitingin frá sjóðunum lækkað um 8 milljónir. Í ár hreppir Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) hæstu styrkveitinguna eða 82,6 milljónir króna en er það fjórum milljónum...