Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Katrín ber traust til Aðalsteins: „Sáttasemjari er innan þeirra heimilda sem er að finna í lögum“

Katrín Jakobsdóttir. Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra ætlar ekki að hvetja til þess að Aðalsteini Leifssyni ríkis­sátta­semjara verði vikið frá í kjara­deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífsins; líkt og Efling hefur farið fram á.

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari.

Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, hefur sent Guðmundi Inga Guðbrands­syni, félags- og vinnu­markaðs­ráðherra, bréf og óskað eftir fundi í fyrra­málið, áður en mál ríkis­sátta­semjara gegn Eflingu verður dómtekið, en hann vill fá lista yfir félags­fólk.

Nú er ljóst að af þeim fundi verður ekki fyrr en á miðvikudaginn, en þá kemur ráðherra heim frá Danmörku þar sem hann er í embættis­gjörðum.

Sólveig Anna Jóns­dóttir.

En í áður­nefndu bréfi Sólveigar Önnu til Guðmundar Inga er lýst afar mikilli óánægju með störf ríkis­sátta­semjara; sér í lagi miðlunar­tillögu er hann setti fram á fimmtudag.

Spurð hvort ætlunin sé að fara fram á að Guðmundur Ingi beiti sér fyrir því að ríkis­sátta­semjari dragi miðlunar­tillöguna til baka, svarar Sólveig Anna í samtali við ruv.is:

„Það er náttúru­lega það sem við viljum að gert sé.“

Þótt Guðmundur Ingi sé ekki á landinu þá er Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra það; skyldi hún og ríkis­stjórnin ætla að blanda sér í deiluna?

„Það hefur ekkert verið ákveðið um það. Nú hefur ég skoðað þetta mál eftir minni bestu getu, og sé ekki betur en að sátta­semjari sé innan þeirra heimilda sem er að finna í lögum. Ef aðilar eru ósammála því mati þá geta þau auðvitað leitað til dómstóla,“ sagði Katrín.

En Sólveig Anna vantreystir Aðalsteini ríkis­sátta­semjara:

„Ég tel augljóst á þessu stigi málsins eins og hann hefur farið fram gagnvart okkur, þá geti hann ekki verið aðili að þeirri deilu sem við erum nú í,“ segir Sólveig Anna.

Katrín er ekki á sama máli og Sólveig Anna:

Katrín Jak­obs­dóttir.

„Eins og ég segi er sátta­semjari sjálf­stæður í sínum störfum, en svo er það auðvitað félags- og vinnu­markaðs­ráðherra að meta stöðuna eftir því sem henni vindur fram. Þannig að í sjálfu sér efnilsega skil ég algjör­lega forsendur þessarar miðlunar­tillögu, en það sem ég skil líka er gagnrýnin á tíma­setninguna og að hún sé viðkvæm. Ég ætla ekkert að taka undir þá gagnrýni en ég skil hana.“ segir Katrín og bætir aðspurð við að lokum að hún beri fullt traust til ríkis­sátta­semjara:

„Það er algjör­lega óraskað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim