Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Frosti hafnar ásökunum Eddu Pétursdóttur: „Gerði ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar“

Frosti Logason Photo / Facebook
Frosti Logason Photo / Facebook

„Ég lagði aldrei hendur á fyrr­verandi kærustu mína ,beitti hana ekki andlegu ofbeldi á meðan á sambandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar eins og haldið er fram,“ skrifar Frosti Logason fjölmiðla­maður á Facebook vegna ásakana Eddu Péturs­dóttur, fyrr­verandi kærustu sinnar.

Edda kom fram í þætti Eddu Falak, Eigin konur, þar sem hún bar Frosta þungum sökum.

Frosti missti vinnu sína hjá Sýn í fram­haldinu og fór á sjóinn. Nú stígur hann fram til að koma skikk á umræðuna. Hann vísar til misskilnings um að hann hefði gengist við ásökunum Eddu Péturs­dóttur sem hafi komið til vegna fyrir­sagna í fjöl­miðlum í mars í fyrra:

„Þetta er að hluta til rétt en staðreyndin er sú að ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar eins og margir virðast nú halda.

Í tilkynningu minni sagðist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sambandi okkar lauk. En þá fór ég í þráhyggju fyrir því að fá viðurkenningu á „brotum hennar“ gagnvart mér og tók að senda ítrekaða tölvu­pósta til hennar á nokkra mánaða tímabili. Mér þykir það mjög leitt að ég hafi gripið til innihalds­lausra hótana í þessum tölvu­póstum,“ skrifar Frosti.

Hann segir að fyrr­verandi kærasta sín hafi ekki tekið neinum tilraunum hans til sátta:

„Ég hef allar götur síðan að viðtalið við fyrr­verandi kærustu mína birtist lagt áherslu á að rétta til hennar sáttar­hönd. Það hef ég bæði gert sjálfur persónu­lega og í gegnum fagaðila. Þess vegna hef ég á sama tíma setið hljóður hjá og gætt mín að fara aldrei út í að greina rétt frá röngu í málflutningi hennar opinber­lega.

Mér hefur heldur aldrei fundist við hæfi að hengja upp okkar skítugasta þvott frammi fyrir allra augum því hann á ekkert erindi til almennings. Ég ber enn þá von í brjósti að fyrr­verandi kærasta mín muni einhvern tímann vilja ljúka þessu máli með mér á þann hátt sem báðir aðilar geta sætt sig við,“ skrifar Frosti.

Pistill Frosta Logasonar í heild sinni:

Kæru vinir
Undan­farið hef ég orðið var við misskilning hjá fólki sem þekkir ekki til mála.

Hann er til kominn vegna fyrir­sagna fjölmiðla í kjölfar yfir­lýsingar minnar í mars í fyrra.

Þessar fyrir­sagnir gáfu í skyn að mistök mín hafi verið meiri en raun ber vitni meðal annars vegna þess að yfir­lýsing mín var ekki nákvæmari en svo að það mátti misskilja hana.

Þar sögðu einhverjir að Frosti Logason hefði gengist við ásökunum Eddu Péturs­dóttur.

Þetta er að hluta til rétt en staðreyndin er sú að ég hef aldrei gengist við öllum ásökunum hennar eins og margir virðast nú halda.

Í tilkynningu minni sagðist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sambandi okkar lauk.

En þá fór ég í þráhyggju fyrir því að fá viðurkenningu á „brotum hennar“ gagnvart mér og tók að senda ítrekaða tölvu­pósta til hennar á nokkra mánaða tímabili.

Mér þykir það mjög leitt að ég hafi gripið til innihalds­lausra hótana í þessum tölvu­póstum. Það er ótrúlegt hvað höfnunar­kenndin getur beyglað vandræða­pésa af þeirri gerð sem ég var á þessum tíma.

Ég legg áherslu á að mér og mínum finnst ég vera á miklu betri stað núna en það er endanlega annarra að dæma um það.

En svo að það sé ítrekað hér þá hef ég sem sagt viðurkennt og beðist afsökunar á að hafa sent óviðeigandi tölvu­pósta eftir að sambandi okkar lauk. Annað gerði ég ekki og ég hef ekki gengist við neinu öðru.

Ég lagði aldrei hendur á fyrr­verandi kærustu mína, beitti hana ekki andlegu ofbeldi á meðan á sambandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar eins og haldið er fram.

Ég hef allar götur síðan að viðtalið við fyrr­verandi kærustu mína birtist lagt áherslu á að rétta til hennar sáttar­hönd.

Það hef ég bæði gert sjálfur persónu­lega og í gegnum fagaðila.

Þess vegna hef ég á sama tíma setið hljóður hjá og gætt mín að fara aldrei út í að greina rétt frá röngu í málflutningi hennar opinber­lega. Mér hefur heldur aldrei fundist við hæfi að hengja upp okkar skítugasta þvott frammi fyrir allra augum því hann á ekkert erindi til almennings.

Ég ber enn þá von í brjósti að fyrr­verandi kærasta mín muni einhvern tímann vilja ljúka þessu máli með mér á þann hátt sem báðir aðilar geta sætt sig við.

Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að það er hennar réttur að gera það ekki þótt það valdi mér og mínum sársauka. Sáttar­vilji minn er hins vegar einlægur.

Frosti Logason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim