Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

20 tittlingar og 40 eistu mættu og vonuðust eftir ókeypis síma: „Ja, það var engum þröngvað úr“

Í lok nóvember árið 1995 vakti auglýsing frá Antoni Skúlasyni mikla athygli. Anton boðaði að þeir sem kæmu naktir í verslun hans í Austur­veri við Háleitis­braut fengju ókeypis síma. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Eigum til Alkatel-, Nokia-, Panasonic-, Motorola- og Nokia-síma ásamt fylgi­hlutum.

Ekkert bónus­kjaftæði, við erum ódýrastir,” sagði í auglýsingunni.

Um 20 manns berháttuðu sig í versluninni í þeirri trú að farsímar væru í boði.

En vandinn var sá að einungis 10 manns fengu farsíma. Það hafði ekki verið tekið fram í auglýsingunni sem birtist í Helgar­póstinum.

Hlutust af því eftirmál þar sem Neytenda­samtökin töldu að brotið hefði verið gegn þeim nöktu sem fóru tómhentir heim.

Helgar­pósturinn var mættur á vettvang þegar verslunin opnaði á auglýstum tíma. Einungis voru mættir naktir karlmenn. Tekin voru viðtöl við þá nöktu sem létu vel af sér.

„Fínt að fá síma fyrir að klæða sig úr,“ segir Jón Már Svavarsson 16 ára.

Hann sippaði sér úr fötunum og lét sig ekki muna um það — fannst þetta ekkert tiltökumál.

Aðspurður hvers vegna engir kvenmenn væru þarna gerir Jón Már ráð fyrir að þær hafi ekki þorað. Hann segir að það hafi myndast hópefli meðal drengjanna og neitar því að hafa sært blygðunar­kennd almennings.

„Þeir sem horfðu gerðu það af fúsum og frjálsum vilja.“

„Þetta er lifandi sönnun þess að Helgar­pósturinn er ekki dauður miðill. Þetta svín­virkaði,“ segir Anton, sem bjóst við að einhverjir væru til í að leggja það á sig að mæta berir en þessi fjöldi kom honum verulega á óvart.

En að sjálfsögðu munum við standa við auglýsinguna gagnvart hinum.“

Anton var gagn­rýndur fyrir að gefa aðeins tíu fyrstu GSM-síma og Neytenda­samtökin fóru að hlutast til um málið; að sjá til þess að hinir tíu fengu einnig GSM-síma.

Anton svaraði þessari gagnrýni svona:

„Í auglýsingunni er boðinn sími. Það var ekki tekið fram að aðeins þeir sem kæmu naktir fengju gefins GSM-síma. Hinum var boðinn sími og einn þáði hann.“

En málið hafði líka aðrar afleiðingar en meint brot á neytenda­löggjöfinni.

Í lögreglu­samþykkt var bannað að striplast á almanna­færi og særa þannig blygðunarsemi fólks.

Helgar­pósturinn upplýsti að RLR rann­sakaði meint hópblygðunarbrot. Anton varðist fimlega.

„Ja, það var engum þröngvað úr. Þeir gerðu þetta allir af fúsum og frjálsum vilja. Ég hef ekkert heyrt frá RLR ennþá,“ sagði hann og taldi sig ekki hafa misboðið almenningi með þessari hugmynd. Hann setur reyndar stórt spurningar­merki við þessa lögreglu­samþykkt sem tekur til blygðunarsemi. Anton sagði langt því frá að hér hafi verið um örvæntingar­fulla auglýsinga­brellu að ræða.

„Þetta átti nú bara að brjóta upp hversdags­leikann með smáhúmor og hafa gaman af.“

Anton kvaðst hafa fengið jákvæð viðbrögð frá öðrum kaup­mönnum og ekki orðið var við öfund í sinn garð fyrir áhrifa­ríka auglýsingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim