Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Guðlaugur vill að eldsneytisbirgðir dugi í 90 daga: Nægt framboð eldsneytis forsenda öryggis

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverf­is­ráð­herra.

Umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, hefur kynnt áform um frumvarp sem tekur til laga um neyðar­birgðir eldsneytis í samráðs­gátt stjórn­valda, en þetta kemur fram á Heimildinni.

Samkvæmt áformunum á að leggja þá skyldu á söluaðila að þeir viðhaldi jarðefna­eldsneytis­birgðum sem jafngildi notkun til níutíu daga; birgðir hérlendis þurfa að duga í tvo mánuði en auk þess eiga sölu­aðilar að sýna fram á að þeir geti uppfyllt allt að 30 daga með tryggingu í birgðum erlendis.

Sagt er frá því að birgða­skylduna á að innleiða í skrefum yfir 7 ára tímabil; verði svo áformin að lögum mun Orku­stofnun fara með eftirlit með framkvæmd þeirra.

Kemur fram að í mati á áhrifum áformanna að búist er við því að þau leiði af sér kostnað fyrir söluaðila eldsneytis; gert er ráð fyrir að velta þeim kostnaði út í verðlag, og Það muni hafa í för með sér tekju­aukningu ríkis­sjóðs í formi virðis­auka.

Í greinar­gerð með drögunum áður­nefndu er nauðsyn laga­setningarinnar rökstudd þannig, að í íslenskri löggjöf sé ekki tilgreindur aðili sem beri ábyrgð á að til séu neyðar­birgðir eldsneytis; né hversu miklar þær skulu vera:

„Engin krafa er sett á stjórn­völd eða atvinnulíf að halda uppi lágmarks­birgðum eldsneytis sem nýta mætti í aðstæðum sem takmarka eða útiloka afgreiðslu eldsneytis til Íslands. Á meðan Ísland er háð jarðefna­eldsneyti getur skortur á því takmarkað mjög hefð­bundna virkni samfélagsins. Vöru­flutningar, samgöngur og atvinnulíf getur lamast ef ekki er til taks orkugjafi til að knýja slíkt áfram.“

Kemur fram í orku­stefnu Íslands til ársins 2050 að nægt framboð eldsneytis sé alger forsenda öryggis á fjölmörgum sviðum; meðal annars fæðu­öryggis, almennra samgangna, löggæslu sem og sjúkra­flutninga; þar er gert ráð fyrir því að öryggis­birgðir olíu verði tiltækar í þeim tilgangi að tryggja orku­öryggi og efnahags­legan stöðug­leika þar til orku­skiptum verði náð hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim