Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sólveig velgir ráðherra undir uggum: „Ég óska því eftir að þú takir á móti mér að morgni mánudags“

Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er samsett.
Halldór Benjamín og Sólveig Anna. Myndin er sam­sett.

„Í ljósi pólitískrar og stjórnsýslulegrar ábyrgðar þinnar á fram­lagningu ríkis­sátta­semjara á svokallaðri miðlunar­tillögu, svo og á tilhæfu­lausri kröfu embættisins um afhendingu gagna úr félaga­skrá Eflingar, geri ég kröfu um að fá áheyrn þína án tafar,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, í harðorðu bréfi sem hún sendir Guðmundi Inga Guðbrands­syni félagsmála­ráðherra í gærkvöld. Hún birti bréfið á Facebook í gærkvöld ásamt skýringum.Krafan er tilkomin vegna þeirrar ákvörðunar Aðalsteins Leifs­sonar ríkis­sátta­semjara að leggja fram miðlunar­tillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífsins. Deilan er í hörðum hnút og hafa Sólveig Anna og Halldór Benjamín Þorbergsson skipst á köpuryrðum.Tillagan, sem fer í dóm félags­manna beggja samtak­anna, felur í sér samning á sömu nótum og Starfs­greina­sambandið gerði fyrir áramót. Þá gerir samningurinn ráð fyrir aftur­virkni þannig að Eflingar­fólk fái það sama og Starfsgrein­sambandið. Á sama tíma eru félags­menn að greiða atkvæði um verkfalls­boðun á Íslands­hótelum. Niður­stöðu í þeirri atkvæða­greiðslu er að vænta eftir helgi.

Ég bið þig að van­meta ekki þann þunga

„Þrátt fyrir augljósa lagalega annmarka, skýrar vísbendingar um hlut­drægni, stórkost­lega skert traust verkalýðs­hreyfingarinnar á embætti ríkis­sátta­semjara og fjölmargar áskoranir um að embættið dragi svonefnda miðlunar­tillögu sína til baka hefur embættið ekki gert það, heldur þvert á móti aukið á forherðingu sína. Kom það berlega í ljós síðastliðinn föstudag þegar embættið lét Héraðsdóm Reykja­víkur birta Eflingu fyrirkall vegna dómsmáls þar sem krafist er afhendingar á viðkvæmum persónu­upplýsingum Eflingar­félaga,“ skrifar Sólveig og telur engar laga­heimildir vera fyrir þessu.

Mörg verkalýðs­félög hafa gagnrýnt ríkis­sátta­semjara fyrir aðferðian við að beita miðlunar­úrræðinu. Félagsmála­ráðherra hefur aftur á móti lýst stuðningi við sátta­semjara í málinu en segist skilja gagnrýni Eflingar­fólks. Sólveig ítrekar kröfu sína um fund með ráðherra og setur honum tímaramma.„Ég óska því eftir að þú takir á móti mér að morgni mánudagsins næst­komandi 30. janúar. Ég legg þunga áherslu á að þú eigir fund með mér eigi síðar en á þeim tíma, þar sem seinna þann dag mun fara fram fyrirtaka í fyrr­nefndu dómsmáli sem ríkis­sátta­semjari hefur höfðað og um kvöldið verða tilkynnt úrslit atkvæða­greiðslu um verkfalls­boðun Eflingar­félaga hjá Íslands­hótelum,“ segir Sólveig.Hún áréttar að um sé að ræða grafal­varlegt fordæmis­gefandi mál sem snúi að lögmæti stofnana aðila vinnu­markaðarins, grundvallar­réttindum vinnandi fólks og því trausti sem verka­fólki verður unnt að bera til opinbers ramma vinnu­markaðsmála á Íslandi til framtíðar. Sólveig gerir ráðherranum grein fyrir því að hann eigi ekki von á góðu ef ekki verði brugðist strax við.„Ég bið þig að vanmeta ekki þann þunga sem Efling – stéttar­félag mun fyrir sitt leyti setja í viðbrögð vegna þessa máls og eftir atvikum beina að þeim stofnunum hins opinbera sem á því bera ábyrgð. Því höfða ég til ábyrgðar þinnar sem ráðherra vinnu­markaðsmála að verða við ósk minni um fund án vífi­lengja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim