InnlentÁttar sig ekki á tali um spillingu: „Þá geta þau notað stóru orðin í orðabók Sjálfstæðisflokksins“ Oddviti Framsóknarflokksins í borginni, Einar Þorsteinsson, segir í samtali við Vísi ásakanir Sjálfstæðismanna um leyndarhyggju og einræðistilburði vera órökstuddar og óskiljanlegar dylgjur; ekki sé hægt að ræða málefni Ljósleiðarans á opnum fundum; enda ríki trúnaður um málið innan rýnihóps. Hefur komið fram að Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ásakaði meirihlutann í borgarstjórn um einræðistilburði, eftir að beiðni hennar þess efnis að...
InnlentJón Gnarr hefur það rólegt með fjölskyldunni á afmælisdaginn: „Ekkert spes i gangi“ Afmælisbarn dagsins er akkurat enginn annar en einmitt Jón nokkur Gnarr. Er borgarstjórinn fyrrverandi 56 ára í dag. Ekki er hægt að hafa bara einn titil á Jóni Gnarr því hann er töluvert meira en aðeins fyrrverandi borgarstjóri. Afmælisbarnið er grínisti, handritshöfundur, leikari og rithöfundur. Fleiri titla má sjálfsagt smella á hann en látum þetta duga. Í raun er algjör...
InnlentOtti ósáttur við auglýsingar Umhverfisstofnunar: „Erum alltaf til í samtalið um að gera betur“ Fyrir áramót var fólk hvatt til að draga úr flugeldanotkun; til dæmis í færslum á TikTok, Facebook og á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Þessar auglýsingar fóru ekki vel í björgunarsveitirnar; kemur líka stór hluti af tekjum þeirra frá flugeldasölu, eins og kemur fram á ruv.is. Otti Rafn Sigmarsson er formaður slysavarnafélagsins Landsbjargar, og telur hann að auglýsingarnar hafi haft neikvæð áhrif á...
Innlent„Maður ársins 2022 er rútustjórinn sem virti í tvígang að vettugi vegatálma björgunarsveitanna“ Geðlæknirinn ritfæri, Óttar Guðmundsson, segir í grein að „um aldir hefur tíðkast um áramót að velja mann ársins. Árið 920 varð Þorgeir Hávarsson fyrir valinu fyrir auðsýndan hetjuskap. Hann var að sækja hvönn í Hornbjarg þegar aurskriða brast undan fótum hans. Honum tókst að grípa í hvannardrjóla og hékk þar daglangt enda vildi hann ekki hrópa á hjálp.“ Bætir við:...
Innlent„Hér fer ekki saman hljóð og mynd, frekar en oftast þegar Katrín forsætis talar“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra talaði um það í áramótaávarpi sínu á Rúv að það samfélag sé gott sem styðji við þá sem minna mega sín. Ekki eru allir sammála þeirri staðhæfingu Katrínar að slíkt eigi um íslenskt samfélag. Gunnar Smári Egilsson, forkólfur Sósíalistaflokks Íslands er einn af þeim sem gagnrýna orð Katrínar. Það gerir hann í nýlegri færslu í Facebook-hóp Sósíalistaflokksins....
InnlentVirkir í athugasemdum koma Illuga til hjálpar: „Taktu út viðbættan sykur magnað hvað það gerir“ Fjöldi manns kemur Illuga til hjálpar og gefur góðar ráðleggingar í baráttunni við aukakílóin en eins og kom fram í gær þá stefnir Illugi að því að losa sig við 50 kíló á árinu 2023. Tæplega 300 manns hafa sent honum ráðleggingar og baráttukveðjur. Hér má sjá örlítið brot af þeim. „Farðu bara vel með sjálfan þig. Minni matarskammta, hreyfing...
InnlentÞótti Skaupið klént og Kryddsíldin betri: „Kann betur en flestir aðrir að hagræða sannleikanum“ Í nýrri fésbókarfærslu óskar Brynjar Níelsson fylgjendum sínum gleðilegs árs og stiklar á stóru um Áramótaskaupið og Kryddsíld. Ef lesa má í nástöðu og einhæfni í orðavali Brynjars er augljóst að honum þótti skaupið ómerkilegt eða klént eins og hann síendurtekið ritar:„Það voru nokkrir góðir sprettir í Skaupinu en heilt yfir var það frekar klént , eins og Jón Viðar...
InnlentLandsmenn klökkir vegna auglýsingar Toyota: „Takk Egill“ Margir Íslendingar urðu klökkir við frumsýningu drottingarauglýsingar Toyota sem birtist í lokaauglýsingaslotti fyrir Áramótaskaupið. Yfirskrift hennar var „Takk Egill“. Auglýsingin var hugljúf þar sem fylgt var eftir Agli Ólafssyni, en hann hefur í um 30 ára skeið séð um lestur auglýsinga fyrirtækisins. Við fylgjum Agli þar sem hann gengur með skjalatösku eftir löngum gangi og sest við langborð. Að hinum...
InnlentLáta örverur melta líkamsleifar – Afhenda aðstandendum jarðveg Molta er jarðvegur sem er unnin með því að örverur melti úrgang. Í Bandaríkjunum hafa yfirvöld New York ríkis bæst í hóp þeirra sem hafa nú gefið einstaklingum heimild til þess að láta endurnýja líkamsleifar sínar með því að láta breyta þeim í moltu, kjósi þeir það. Í þessu tilviki melta örverur líkamsleifar viðkomandi en er þessi leið talin umhverfisvænni...
InnlentFréttablaðið kemur ekki lengur heim til fólks – Reiðarslag fyrir dreifingarfyrirtæki Moggans Fréttablaðið verður ekki lengur borið heim til fólks eins og verið hefur frá því það var stofnað eftir aldamótin. Þessi stórtíðindi voru boðuð á vef blaðsins í morgun. Lúgudreifingu verður þegar í stað hætt og blaðinu þess í stað dreift á 120 sölustöðum, víða um land. Ástaðæða breytinganna mun vera óánægja með samstarfið við Póstdreifingu, sem er að meirihluta í...
InnlentSegir orðið kúltúrbörn „óttalega vitlausa“ þýðingu: „Klíkukrakkar væri nær lagi.“ Rithöfundurinn Guðmundur Brynjólfsson er ósáttur við orðið kúltúrbörn og segir annað orð mun betri þýðing. Í síðustu viku áttu rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Berglind Ósk í stuttri ritdeilu en sú fyrrnefnda skrifaði langa færslu á Facebook þar sem hún kvartaði meðal annars undan ósanngjarnri gagnrýni frá Berglindi Ósk sem hafði kallað hana og Kamillu Einarsdóttur, kúltúrbörn. Berglnd Ósk svaraði fullum...
InnlentÍslenskur köttur fannst eftir þrjú ár á vergangi: „Eflaust ekki lifað af nóttina í kuldanum“ Sandra Ósk Jóhannsdóttir, sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu, tísti rétt fyrir miðnætti á nýársdag að köttur hafi fundist á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Samstarfskona hennar, Freyja, hafi farið á vettvang, skannað dýrið og haft samband við eiganda kattarins. Í ljós kom að kötturinn sem ber nafnið Brúsi, hafi verið týndur í þrjú ár. Brúsi var fæddur 2007 og því kominn á sextánda aldursár....