Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Otti ósáttur við auglýsingar Umhverfisstofnunar: „Erum alltaf til í samtalið um að gera betur“

Otti Rafn Sigmarsson.
Otti Rafn Sig­mars­son.

Fyrir áramót var fólk hvatt til að draga úr flugelda­notkun; til dæmis í færslum á TikTok, Facebook og á heimasíðu Umhverfis­stofnunar.

Þessar auglýsingar fóru ekki vel í björgunar­sveitirnar; kemur líka stór hluti af tekjum þeirra frá flugelda­sölu, eins og kemur fram á ruv.is.

Otti Rafn Sigmarsson er formaður slysavarna­félagsins Lands­bjargar, og telur hann að auglýsingarnar hafi haft neikvæð áhrif á söluna:

„Já við teljum það. Salan var kannski aðeins undir pari frá því í fyrra. Það eru kannski ýmsar ástæður fyrir því og þetta er klárlega ein af þeim.“

Forstjóri Umhverfis­stofnunar, Sigrún Agústsdóttir, segir hefð ríkja fyrir því að miðla upplýsingum um áhrif flugelda­notkunar í kringum áramót; Íslendingar séu stór­tækari en margar aðrar þjóðir í þessum efnum; það sé einfald­lega lögbundið hlutverk stofnunarinnar:

„Samkvæmt áætlun um loftgæði á Íslandi þá er gert ráð fyrir því að Umhverfis­stofnun sé með upplýsinga­miðlun og fræðslu um flugelda. Flug­eldarnir eru jú orsök þess að það er farið yfir heilsu­verndar­mörk svifryks um það bil annað hvert ár á Íslandi. Þetta geta verið töluverð áhrif og samkvæmt upplýsingum frá læknum geta þessi áhrif varað í nokkrar vikur jafnvel.“

Otti sýnir hlutverki Umhverfis­stofnunar skilning; en hann furðar sig á aðferðum Umhverfis­stofnunarinnar:

„Það er vissulega þeirra hlutverk og við höfum ekkert farið í felur með það að flugeldar mengi en við höfum líka lagt okkar af mörkum að þeir mengi minna og erum alltaf til í samtalið um að gera betur og eiga gott samtal okkar á milli. En kannski ekki alveg með svona sterkum yfir­lýsingum og beinni herferð.“ Segir Otti sem hyggst taka málið upp við Umhverfis­stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi