Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Áttar sig ekki á tali um spillingu: „Þá geta þau notað stóru orðin í orðabók Sjálfstæðisflokksins“

Einar Þorsteinsson.
Einar Þor­steins­son.

Oddviti Framsóknar­flokksins í borginni, Einar Þorsteinsson, segir í samtali við Vísi ásakanir Sjálfstæðis­manna um leyndar­hyggju og einræðis­tilburði vera órökstuddar og óskiljanlegar dylgjur; ekki sé hægt að ræða málefni Ljós­leiðarans á opnum fundum; enda ríki trúnaður um málið innan rýnihóps.

Hefur komið fram að Marta Guðjóns­dóttir borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins ásakaði meirihlutann í borgar­stjórn um einræðis­tilburði, eftir að beiðni hennar þess efnis að málefni Ljós­leiðarans yrðu rædd í borgar­stjórn var ekki samþykkt.

Sagði Marta höfnun meirihlutans merki um einræðis­tilburði og leyndar­hyggju varðandi málefni ljós­leiðarans.

Einar segir að þarna sé um mál að ræða sem ekki sé hægt að ræða fyrir opnum tjöldum eins og staðan sé nú:

„Þarna er um að ræða viðskipta­málefni fyrir­tækis sem er á samkeppnis­markaði og það er eðli máls samkvæmt ekki hægt að ræða þau fyrir opnum tjöldum í borgar­stjórn,“ segir Einar, en Ljós­leiðarinn er í eigu borgarinnar og Orkuveitu Reykja­víkur, en Reykja­víkurborg á 93 prósenta hlut í:

„Við í meirihlutanum í borgar­ráði lögðum hins vegar til að stofnaður yrði rýnihópur svo að fulltrúar allra flokka í borgar­ráði hefðu tækifæri til að fá jafnan aðgang að öllum gögnum málsins, alveg eins og meirihlutinn.

Þar sem við gætum farið yfir þau og rýnt alla hagsmuni borgarinnar sem eru í húfi og áhættuna sem felst í þessu máli. Þegar fram líða stundir og hægt er að aflétta trúnaði af þeim gögnum sem um ræðir verður þetta að sjálfsögðu rætt í borgar­stjórn fyrir opnum tjöldum en það eru ekki allir í borgar­stjórn sem hafa aðgengi að þessum gögnum, sem hafa verið lögð fyrir rýni­hópinn, því þar er bara einn fulltrúi frá hverjum flokki,“ segir Einar og bætir við:

„Þess vegna yrði umræðan í borgar­stjórn afar undarleg þar sem sumir í borgar­stjórn þekktu til gagnanna en aðrir ekki og þessi umræða í borgar­stjórn á þessum tíma­punkti yrði afar undarleg og skrítin. Því er farsælast að vinna þetta vel á vettvangi rýni­hópsins og síðar í borgar­stjórn.“

Einar segist ekki átta sig ekki á því hvers vegna borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins saki meirihlutann um einræðis­tilburði:

„Ég átta mig ekki alveg á því hvers konar gamaldsags pólitík Sjálfstæðis­menn eru að stunda. Þeir vita það að það er ekki hægt að ræða þetta fyrir opnum tjöldum. Þá nýta þau tækifærið til að krefjast þess að það sé gert vegna þess að þau vita að við getum ekki gert annað en að hafna því. Þá geta þau sakað okkur um leyndar­hyggju og jafnvel spillingu og notað öll stóru orðin í orðabók Sjálfstæðis­flokksins,“ segir Einar. „Verði þeim bara að góðu með það. Við erum að vinna þetta faglega á vettvangi rýni­hópsins, allan hafa jafnan aðgang að gögnum, það er í góðri samvinnu við alla aðra flokka í borgar­stjórn nema Sjálfstæðis­flokk. Allar ásakanir um leyndar­hyggju og slíkt eru algjör­lega órökstuddar og óskiljanlegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi