Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fréttablaðið kemur ekki lengur heim til fólks – Reiðarslag fyrir dreifingarfyrirtæki Moggans

Frétta­blaðið verður ekki lengur borið heim til fólks eins og verið hefur frá því það var stofnað eftir aldamótin. Þessi stór­tíðindi voru boðuð á vef blaðsins í morgun. Lúgu­dreifingu verður þegar í stað hætt og blaðinu þess í stað dreift á 120 sölu­stöðum, víða um land. Ástaðæða breytinganna mun vera óánægja með samstarfið við Póst­dreifingu, sem er að meirihluta í eigu útgáfu Morgun­blaðsins. Frétta­blaðið verður með sitt eigið fólk í að dreifa blaðinu á útsölu­staði. Ákvörðunin um að slíta viðskiptunum er reiðar­slag fyrir dreifingar­fyrirtækið en sparar Torgi, útgáfu Frétta­blaðsins milljarð króna á ári.

„Fram til þessa hefur Frétta­blaðinu verið dreift inn á heimili íbúa á höfuð­borgar­svæðinu og á Akur­eyri en því verður nú hætt. Blaðið verður þess í stað að­gengi­legt á yfir 120 fjöl­förnum stöðum á höfuð­borgar­svæðinu, á Suður­nesjum, Ár­borg, Ölfusi, Akra­nesi, Borgar­nesi, Akur­eyri og víðar. Á­fram verður unnið að frekari dreifingu blaðsins. Þá hefur sá fjöldi sem les blaðið dag­lega á raf­rænu formi, ýmist í appi eða á pdf-formi, vaxið jafnt og þétt. Ekki er búist við að breytt dreifing muni hafa teljandi á­hrif á lestur blaðsins,“ segir á vef Frétta­blaðsins.

„Á­stæða þessarar breytingar er marg­þætt. Í fyrsta lagi höfum við hjá Torgi haft vaxandi á­hyggjur af því að dreifing blaðsins væri ekki í sam­ræmi við þau mark­mið sem við höfum gengið út frá og að dreifingar­ferlinu fylgdi ó­þarfa sóun. Það er í takti við vaxandi um­hverfis­vitund að lág­marka kol­efnis­spor í okkar starf­semi. Við bætist svo að dreifing blaðs til tug­þúsunda heimila er ó­hemju kostnaðar­söm og reikna má með að kostnaður á ný­byrjuðu ári hefði orðið yfir einn milljarður króna,“ segir Jón Þórisson, útgáfu­stjóri Torgs, um ákvörðunina.

Samkvæmt heimildum Mannlífs verður útgáfu­dögum Frétta­blaðsins ekki fækkað. Þá eru engin áform um að fækka starfs­fólki á ritstjórn eða í auglýsinga­sölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi