Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

„Maður ársins 2022 er rútustjórinn sem virti í tvígang að vettugi vegatálma björgunarsveitanna“

Geðlæknirinn ritfæri, Óttar Guðmundsson, segir í grein að „um aldir hefur tíðkast um áramót að velja mann ársins. Árið 920 varð Þorgeir Hávarsson fyrir valinu fyrir auðsýndan hetjuskap. Hann var að sækja hvönn í Hornbjarg þegar aurskriða brast undan fótum hans. Honum tókst að grípa í hvannar­drjóla og hékk þar daglangt enda vildi hann ekki hrópa á hjálp.“

Bætir við:

„Í greinar­gerð dómnefndar kom fram að Þorgeir hefði með þessu sýnt fádæma þvermóðsku og hugrekki.

Eggert Ólafsson skáld var valinn maður ársins 1768. Hann sýndi eitraða karl­mennsku þegar hann lagði út á Breiða­fjörðinn í brjáluðu veðri og hlustaði ekki á varnaðarorð karls­karfa í fjörunni. Skipið sökk undan Eggert en minningin um góðan dreng og fífl­djarfan lifir.“

Heldur áfram:

„Árið 1780 voru þeir Reyni­staðabræður Bjarni og Einar Halldórs­synir kosnir menn ársins. Þeir lögðu á Kjöl um vetur í leiðinda­veðri með nokkur hundruð fjár þvert á ráðleggingar. Þeir urðu úti með allt féð.“

OgÓttar er alveg klár á því hver sé maður ársins 2022:

„Maður ársins 2022 er rútu­stjórinn sem virti í tvígang að vettugi vegatálma björgunar­sveitanna við Vík í Mýrdal. Þetta er sannur Íslend­ingur sem hlýðir engu og æðir út í snjó­mugguna á rútunni fullri af erlendum ferða­mönnum.

Með þessu athæfi veitti hann ferða­mönnunum innsýn í íslenskan vetrar­veruleika og þjóðarsál.

Þessi maður ætti líka að fá frumkvöðla­verðlaun Ferðamála­ráðs fyrir nýstár­lega land­kynningu.

Þorgeir, Eggert, Reyni­staðabræður og rútu­stjórinn láta engan segja sér fyrir verkum. Við eigum að heiðra svona þver­girðinga að verð­leikum.

Danir vildu um aldir flytja alla Íslendinga á Jótlands­heiðar enda væri landið óbyggilegt. Við getum þakkað þjóðhollu fólki sem hlýðir engum fyrir­mælum að Ísland er enn í byggð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi