InnlentUppgangur í fluggeiranum – Margir vilja vinna hjá Play Play hefur auglýst eftir 55 flugmönnum og nú þegar hafa tugir umsókna borist samkvæmt Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóra flugfélagsins. Fram kemur hjá Túrista að umsóknirnar hafi borist frá bæði íslenskum og erlendum flugmönnum, en Nadine segir að Play muni ráða flugmenn sem eru búsettir á Íslandi, óháð þjóðerni, en allir munu starfa samkvæmt íslenskum kjarasamningi. Um 70 flugmenn starfa hjá...
InnlentÖryrkjabandalagið slær nýjan tón: „Útrýma takmarkandi forskeytum“ ÖBÍ réttindasamtök eru heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi. Í yfir sextíu ár hafa samtökin barist fyrir samfélagi jöfnuðar og réttlætis þar sem allir einstaklingar njóta mannsæmandi lífskjara og jafnra möguleika til sjálfstæðs lífs og virkrar samfélagslegrar þátttöku, óháð líkamlegu og andlegu atgervi. Fatlað fólk er í öllum fjölskyldum, öllum atvinnugreinum og á öllum skólastigum. Með reglulegu millibili hafa áherslur og...
InnlentVinnustaðaáreiti: „Sú fúla sem getur ekki tekið djókinu“ Þriðja hver kona á Íslandi hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í vinnunni, samkvæmt umfangsmikilli rannsókn Háskóla Íslands sem fréttastofa greindi frá í gær. Niðurstöðurnar eru sláandi en koma fáum á óvart. „Nei, miðað við þær rannsóknir sem við höfum verið að lesa þá kemur þetta mér ekki á óvart,” segir Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri forvarnarsviðs VIRK í samtali við...
InnlentTalsverður erill var hjá lögreglunni í nótt – hótanir, líkamsmeiðingar og innbrot Talsverður erill var hjá hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og mikið af ölvunartengdum minniháttar málum. Í miðbænum var ekið utan í bifreið og fór ökumaður svo á brott á sinni bifreið án þess að gefa upplýsingar um sig eða gera viðvart um tjónið. Málið er í rannsókn. Um eitt leytið var tilkynnt um mann sem hafði ráðist á dyraverði...
InnlentMalagafanginn – Þegar íslenska þjóðin safnaði pening fyrir góðkunningja lögreglunnar Íslendingar hafa lengi verið þekktir fyrir miskunsemi og gott hjartalag þegar kemur að lítilmagnanum. Þetta sést best þegar safna þarf fyrir einhverju misþörfu, til dæmis þegar safna þarf pening fyrir sveltandi börn úti í heimi eða þegar hljóðfæraleikarar vilja bestu mögulegu hljóðfærin, svo eitthvað sé nefnt. Árið 1985 söfnuðu Íslendingar pening fyrir Sigurð Stefán Almarsson, með hjálp DV en hann...
InnlentHúsnæðiskreppa í borginni: „Stofna byggingarfélag og fjarlægja milliliði“ Borgarstjórnarflokkur Sósíalista kynnir tillögu sína í húsnæðismálum – í borgarstjórn í næstu viku. Í henni felst að Reykjavíkurborg stofni byggingarfélag. Samkvæmt Sósíalistaflokksins þekkist þetta fyrirkomulag í borgum víða í kringum okkur og hefur hjálpað við að koma skikk á húsnæðiskreppuna. Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um stofnun byggingarfélags Reykjavíkurborgar „Borgarstjórn samþykkir að fela viðeigandi sviðum innan borgarinnar að hefja nú þegar...
InnlentBangsahátíð í Reykjavík: „Við skiljum líkamsskömmina eftir heima“ Bangsafélagið stendur fyrir árlegri hátíð félagsins Reykjavík Bear nú um helgina. Um 60 erlendir gestir eru á hátíðinni auk milli 70 – 100 bangsa sem búa á Íslandi. Bangsafélagið er hagsmunafélag Samtakanna ’78 og félagsskapur bangsa (e. Bears). Bears on Ice hátíðin var fyrst haldi árið 2005 en árið 2019 var nafni hátíðarinnar breytt í Reykjavík Bear. Reykjavík Bear stendur...
InnlentFuck ofbeldi vettlingarnir styðja við hinsegin: „Einstök herferð á heimsvísu“ UN Women á Íslandi hefur sölu á FO vettlingum í dag, föstudaginn 2. september. Þetta er í áttunda sinn sem UN Women fer af stað í FO herferð, nú í samstarfi við Sjóvá. FO herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa safnast um 80 milljónir á þessum árum sem runnið hafa í að uppræta kynbundið ofbeldi á heimsvísu....
InnlentHópur stelpna kvartaði undan kennara í FSu: „Var gert ljóst að þessi hegðun væri með öllu ólíðandi“ Fjölbrautaskóli Suðurlands, FSu hefur verið talsvert í fjölmiðlum undanfarið en skólastjórnendur hafa verið sakaðir um að taka illa á meintum kynferðisbrotum innan skólans. Eftir að þráður um skólann birtist á samfélagsmiðlinum Twitter bættust við nokkrar sögur af svipuðu meiði er vörðuðu skólann en ein þeirra snéri að kennara þar innanborðs. Stúlka sem stundaði nám í FSu fyrir nokkrum árum skrifaði...
InnlentLandhelgisgæslan á björgunaræfingu á Svalbarða alla vikuna – Myndir Landhelgisgæslan hefur leitt skipulagningu umfangsmikillar björgunaræfingar á Svalbarða alla vikuna. Frá æfingunni á SvalbarðaMynd: lhg.is Samkvæmt vef Gæslunnar hefur æfingin staðið yfir frá mánudegi til fimmtudags í þessari viku og hefur Landhelgisgæslan annast skipulagningu hinnar viðamiklu æfingar um borð í farþegaskipinu MV Quest undan ströndum Longyearbyen á Svalbarða. Er æfingin hluti af samstarfsverkefninu ASCSAR en í því tekur Landhelgisgæslan þátt...
InnlentPírati skýtur frétt Moggans í kaf: „Í fyrsta lagi að hætta að líta á fólksfjölgun sem ógn“ Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata svarar frétt Morgunblaðsins um fjölgun flóttafólks á Íslandi, fullum hálsi. Helgi Hrafn setti fréttahlekk í dag á Facebook-vegg sinn frá mbl.is en í fréttinni er haldið fram að einar Vestmannaeyjar hafi sótt um og muni sækja um hæli á næstu árum hér á landi. Segir Píratinn þetta rangt og svarar í nokkrum liðum. „1....
InnlentFarmur eyðilagðist á Reykjanesbraut – Ljósmyndir Vörubíll lenti í óhappi á Reykjanesbrautinni með þeim afleiðingum að farmurinn eyðilagðist, rétt fyrir ellefu í morgun. Umferðaróhapp varð á Reykjanesbrautinni rétt fyrir ellefu en svo virðist sem vörubíll hafi keyrt upp undir brú sem liggur að Smiðjuvegi með þeim afleiðingum að farmurinn eyðilagðist og dreifðist um götuna. Mannlíf heyrði í Gunnari Hilmarssyni aðalvarðstjóra lögreglunnar á Dalveg í Kópavogi sem...