Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hópur stelpna kvartaði undan kennara í FSu: „Var gert ljóst að þessi hegðun væri með öllu ólíðandi“

Fjölbrautarskóli Suðurlands.
Fjöl­braut­ar­skóli Suð­ur­lands. Mynd: ai.is

Fjölbrauta­skóli Suður­lands, FSu hefur verið talsvert í fjöl­miðlum undan­farið en skóla­stjórnendur hafa verið sakaðir um að taka illa á meintum kynferðis­brotum innan skólans. Eftir að þráður um skólann birtist á samfélags­miðlinum Twitter bættust við nokkrar sögur af svipuðu meiði er vörðuðu skólann en ein þeirra snéri að kennara þar innanborðs.

Stúlka sem stundaði nám í FSu fyrir nokkrum árum skrifaði færslur á Twitter en þar talar hún um karlkyns kennara sem var afar óviðeigandi í hegðun í tímum, þegar einungis stelpur voru í tímanum. Gaf hún Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færslurnar.

„Var með kennara í FSU sem nýtti sér tækifærið þegar engir strákar mættu í tímana og sagði okkur stelpunum frá öllum sínum kynlífs­sögum með ÖLLUM detailum (allt frá hvar uppi hvaða stellingar) og bað síðan ítrekað um að fá að heyra eins sögur frá okkur. Flestar stelpurnar í bekknum tóku sig saman þegar við vorum flestar hættar að geta mætt útaf óviðeigandi framkomu hans og sendum póst á Olgu Lísu um þetta og nefnum síðan einhvað um námið í leiðinni.. þetta var svarið sem við fengum og ekkert sem var gert.“

Bætti hún því svo að skóla­stjórinn hafi haft meiri áhyggjur af náms­óánægju þeirra en áreitinu.

„hún literally hafði meiri áhyggjur á náms óánægjunni sem við lýstum yfir heldur en ÁREITINU SEM KENNARINN VAR AÐ BEITA OKKUR“

Að sögn stúlkunnar er kennarinn nú hættur kennslu sökum aldurs.

Mannlíf ræddi einnig við aðra stúlku sem var í sama áfanga og staðfesti hún hegðun kennarans.

Í svari Olgu Lísu Garðars­dóttur, skóla­stjóra FSu við fyrir­spurn Mannlífs, sagði hún að kennarinn hafi hlotið tiltal:

„Þegar kvartað er undan kennara innan skólans fer ákveðið ferli í gang hér innanhúss. Kennarinn sem um ræðir kenndi áfanga m.a. um samskipti kynjanna. Var hann kallaður á fund með skóla­stjórnendum þar sem honum var gert ljóst að ákveðnir nemendur (sem aldrei eru  nafn­greindir við kennara) hefðu kvartað undan óviðeigandi samskiptum hans við nemendur í kennslu­stund. Var kennaranum gert ljóst að þessi hegðun væri með öllu ólíðandi og að hún yrði ekki liðin. Voru nemendur jafnframt beðnir um að láta skóla­stjórnendur vita ef þessi samskipti héldu áfram. Engar frekari tilkynningar bárust frá nemendum vegna málsins.“

Samkvæmt fyrrum nemendunum sem um ræðir, sem Mannlíf ræddi við, er stað­hæfing Olgu Lísu, um að nemendur hafi jafnframt verið beðnir um að láta skóla­stjórnendur vita ef samskiptin héldu áfram, ósönn. „Vá magnað að hún segi þetta við þig því eina sem hún sagði við okkur varðandi þetta var það sem sest í tölvu­póstinum, nefnir aldrei að við eigum að láta hana vita ef þetta lagist ekki,“ sagði nemandinn fyrr­verandi í samtali við Mannlíf.

Fréttin er uppfærð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum