Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fuck ofbeldi vettlingarnir styðja við hinsegin: „Einstök herferð á heimsvísu“

UN Women á Íslandi hefur sölu á FO vettlingum í dag, föstu­daginn 2. september. Þetta er í áttunda sinn sem UN Women fer af stað í FO herferð, nú í samstarfi við Sjóvá. FO herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa safnast um 80 milljónir á þessum árum sem runnið hafa í að uppræta kynbundið ofbeldi á heimsvísu. Í ár verður varn­ingurinn til styrktar hinsegin verkefnum UN Women um allan heim.

UN Women er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem berst fyrir réttindum og málefnum hinsegin fólks um allan heim, enda verður jafnrétti ekki náð nema með jöfnum réttindum allra hópa. Mikið bakslag hefur orðið í réttinda­baráttu hinsegin fólks á síðustu árum, þ.m.t. innan Sameinuðu þjóðanna, þar sem aðilda­ríki takast á um þessi málefni. Víða býr hinsegin fólk við gríðar­lega mismunun, skert réttindi og ofbeldi sökum kyns og kynhneigðar. Það er því gríðar­lega mikilvægt að UN Women standi áfram vörð um velferð og réttindi hinsegin fólks á tímum sem þessum.

FO vettlingarnir endurlífga fjársveltan málaflokk

FO varn­ingurinn í ár eru vettlingar sem hannaðir eru af Védísi Jóns­dóttur, prjóna­hönnuði, og fram­leiddir af Varma. Vettlingarnir kosta 4.900 krónur, eru úr 100% merínó ull og koma í tveimur stærðum (S/M og M/L). Hægt er að kaupa vettlingana á heimasíðu samtak­anna, unwomen.is (https://gjafaverslun.unwomen.is/product/fo-vettlingarnir). Védís lagði mikið upp úr því að engin hlið á vettlingunum væri eins. Enda táknar það fjöl­breyti­leikann sem herferðin styður við.

Hinsegin verkefni UN Women hafa verið án fjármagns síðan í maí á þessu ári og því er fjár­stuðningurinn sem hlýst af sölu vettlinganna gríðar­lega mikil­vægur. Enda verður lítið aðhafst með tómum sjóði.

97% líklegra til að verða fyrir ofbeldi

Meðal hinsegin verkefna UN Women er þjálfun heilbrigðis­starfsfólks í Líberíu svo þau geti veitt hinsegin fólki viðunandi þjónustu, rekstur menninga­seturs fyrir konur og hinsegin fólk í Líbanon og fjölþætt verkefni í Georgíu sem miðar að því að uppræta ofbeldi gegn hinsegin fólki.

  • 2 milljarðar fólks býr í ríkjum þar sem hinsegin­leiki er álitinn glæpur
  • 84% ríkja heims banna samkynja hjónabönd og viðurkenna ekki tilvist þeirra. Það er því yfir­gnæfandi meirihluti landa í heiminum sem banna þau en heimila. Mikið bakslag hefur átt sér stað til dæmis í Banda­ríkjunum og víða í Evrópu þar sem árangur hafði áður náðst og því standa þessi réttindi víða höllum fæti.
  • Hinsegin fólk er 97% líklegra til að verða fyrir kynferðis­legu ofbeldi en þau sem ekki skilgreina sig sem hinsegin.
  • Hinsegin fólk er handtekið og sett í fangelsi fyrir að vera það sjálft. Í sumum löndum varðar það dauða­refsingu, í öðrum er grófum pyntingum og ómannúðlegri meðferð beitt.. Refsingin er mismikil. Í Úganda, Súdan, Zambíu og Gambíu svo dæmi séu tekin, varðar það lífstíðar­fangelsi, í Afghanistan er hægt að dæma fólk til dauða, í Pakistan og Brunei er fólk steinað til dauða fyrir að vera hinsegin, í öðrum löndum tíðkast refsingar á borð við hýðingar, sektir eða opinber smánun.
  • Í 6 löndum ríkir dauða­refsing við samkyn­hneigð og samböndum fólks af sama kyni
  • Aðeins 37 ríki heims veita hinsegin fólki alþjóð­lega vernd/hæli á grund­velli ofsókna vegna kynvitundar/kynhneigðar

Einstök herferð á heimsvísu

UN Women á Íslandi fékk 40 hinsegin einstaklinga til að sitja fyrir á öllu FO herferðar­efninu í ár og eru þau andlit herferðarinnar. Þátttaka þeirra er táknræn þar sem þau leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á því bakslagi sem orðið hefur á heimsvísu, þar með talið á Íslandi og styðja þannig við þessa mikilvægu og sögulegu söfnun.

Þetta er í fyrsta sinn sem lands­nefnd UNW (þær eru tólf á heimsvísu) safnar í hinsegin­sjóð UN Women sem er hér um bil alveg tómur. Íslenska lands­nefndin ætlar að ríða á vaðið og setja málefni hinsegin fólks á dagskrá hjá UN Women, enda er um að ræða einn viðkvæmasta- og jaðar­settasta hópinn á heimsvísu. Ljós­myndir tók Anna Maggý, sem hefur nú myndað FO herferð UN Women á Íslandi þrjú ár í röð.

Fögnuður og frumsýning varnings á Húrra í dag kl 17:00

Nýrri vöru og herferð verður fagnað á skemmtistaðnum Húrra við Tryggva­götu 22 á milli klukkan 17:00- 19:00 í dag, föstu­daginn 2. september. Þar verður hægt að næla sér í vettlinga og styrkja um leið afar mikilvægt og aðkall­andi málefni. Fram koma DJ Dóra Júlía, Una Torfa­dóttir, Systur og drag­drottning Íslands, Lady Zadude. Siggi Gunnars verður svo veislu­stjóri viðburðarins. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum