InnlentÞetta fá skólakrakkar á Seltjarnesi í matinn: „Myndi varla vilja gefa hamstrinum mínum þetta“ Íbúar á Seltjarnarnesi hnakkrífast nú um hvort skólamaturinn sem börnum þeirra er boðið upp á í skólanum sé boðlegur eður ei. „Ömurlegt“ og „Þetta er bænum til háborinnar skammar“ eru meðal ummæla bálreiðra bæjarbúa sem tjá sig um matinn sem boðið var upp á í gær. Inn á Facebook hóp Seltjarnarness eru myndir birtar af skólamatnum sem um ræðir. „Uuuuu….ok…Verði...
InnlentEina vitið að lengja Reykjavíkurflugvöll – Alþingishúsið yrði flugstöð og þingmenn í Hegningarhúsið Anna Kristjánsdóttir veltir fyrir sér hvort það megi ekki skera á þann hnút sem myndast hefur vegna flugvallarins í Vatnsmýrinni með því að lengja flugbrautina þar. Þannig mætti brautina til norðurs yfir Tjörnina og breyta Alþingishúsinu í flugstöð. Þingmenn gætu svo farið þangað sem þeir eiga best heima, í Hegningarhúsið gamla við Skólavörðustíg. Anna veltir þessu fyrir sér í samhengi...
InnlentHrafn Jökulsson gekk í hjónaband: „Uppfylltist mesta ævintýri lífs míns“ Hrafn Jökulsson, skákfrömuður, rithöfundur, mannvinur og náttúruverndarsinni, gekk í hjónaband á dögunum. Hann segir að þar með „ uppfyllist mesta ævintýri lífs míns“ en Hrafn berst nú fyrir lífi sínu eftir að hafa í sumar greinst með banvænt krabbamein. Hrafn greinir sjálfur frá hjónabandinu í fallegri færslu á Facebook og við skulum gefa rithöfundinum orðið: Sjá einnig: Hrafn berst af...
InnlentDrukkin kona á rafskútu braut framtönn – Margir ölvaðir undir stýri í nótt Lögregla var kölluð út í Hlíðarnar rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Þar hafði kona dottið af rafskútu með þeim afleiðingum að framtönn brotnaði. Konan hlaut einnig áverka á andliti og var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttöku. Er hún grunuð um akstur undir áhrifum áfengis og voru því tekin blóðsýni til þess að ganga úr skugga um það. Þá hafði...
InnlentHjón skotin til bana – Hörmulegur atburður í Mosfellssveit Að morgni 29. ágúst 1978 barst lögreglunni símtal um að slys hafi átt sér stað á Þormóðsstöðum í Mosfellssveit. Lögreglan sendi menn á staðinn og á vettvangi blasti við þeim hörmuleg sjón. Í frétt frá Morgunblaðinu 30. ágúst sama ár segir: „Eftir því sem Morgunblaðið hefur fregnað var það laust fyrir kl. 6 í gærmorgun að hringt var í lögregluna...
InnlentTónlistarkonan Laufey: „Þetta er eins og í kvikmynd“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki. Ég bjóst ekki við þessu,“ segir Laufey Lin Jónsdóttir tónlistarmaður en platan hennar Everything I Know About Love situr í tíunda sæti yfir vinsælustu nýju plöturnar á topplista Spotify í Bandaríkjunum. „Tónlistin mín er í svolítið gömlum stíl; það er mikið af djasstónum og klassískum tónum og markmið mitt hefur alltaf verið að koma eldri...
InnlentSkyndilegur missir: „Sorg fjölskyldunnar viðurkennd óháð fjölskyldugerð“ „Í dag fæ ég tækifæri til að flytja ávarp á ráðstefnu Sorgarmiðstöðvarinnar sem ber yfirskriftina „Skyndilegur missir“. Lengi vel þótti það mikill persónulegur styrkleiki að bera ekki tilfinningar sínar á torg. Það þótti allt að hetjulegt að harka bara af sér og bera harm sinn í hljóði – en harmurinn minnkaði ekkert við það.“ Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra...
InnlentReykjavík slítur vinasambandi: „Gengur gegn öllum gildum borgarstjórnar“ Í morgun samþykkti Borgarráð einróma að slíta vinaborgasamstarfi við Moskvu. Frá árinu 2007 hefur samstarfssamningur verið í gildi á milli borganna. Borgarstjóri átti fund með borgarstjóra Lviv 20. apríl og sendiherra Úkraínu á Íslandi 16. júní. Borgarstjóri hefur í framhaldi af umræðunnifundað með utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið um málið sem gerir ekki athugasemdir við tillögu um slit á vinaborgarsamstarfi, samkvæmt upplýsingum...
InnlentMagnús beitti manninn hrottalegu ofbeldi: „Lést af völdum áverka sem torveldaði öndun“ Maðurinn sem var myrtur í Barðavogi í sumar lést af völdum höfuðáverka og áverka á andliti sem torveldaði öndun, þetta kom fram í ákæru héraðssaksóknara. Fjölskylda mannsins krefur Magnús Aron Magnússon, sakborning í málinu, um rúmlega 40 milljónir í bætur.Magnúsi er gefið að sök að hafa beitt manninn hrottalegu ofbeldi, fyrst inni á stigagangi hússins við Barðavog og síðan utan...
InnlentÞjóðarhöll íþrótta tilbúin 2025 – Uppbygging hafin Ásmundur Einar Daðason, ráðherra íþróttamála skipaði starfshóp um uppbyggingu þjóðarleikvanga síðastliðin vetur. Í kjölfar undirritunar viljayfirlýsingar stjórnvalda og Reykjavíkurborgar 6. maí um nýja þjóðarhöll var skipuð framkvæmdanefnd um uppbygginguna. Helgi Geirharðsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd um uppbyggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal. Ráðgert er að byggingaframkvæmdum verði lokið á árinu 2025. Helgi Geirharðsson er nýr verkefnastjóri hjá framkvæmdanefnd...
InnlentÚrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. september – Flutti inn 5.000 töflur af OxyContin Tveir menn voru handteknir í aðgerðum lögreglu eftir að tollurinn lagði hald á 5.000 töflum af OxyContin. Annar þeirra var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald. Sjá einnig: Ópíóíðafaraldur sannarlega hafinn á Íslandi – Aldrei fleiri látist úr ofskammti lyfja Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar...
InnlentHelga Vala svarar Þorsteini Pálssyni fullum hálsi: „Réttlætismál og þarna stöndum við föstum fótum“ Helga Vala Helgadóttir þvertekur fyrir það að Samfylkingin hafi tekið ESB-aðild af dagskrá líkt og Þorsteinn Pálsson heldur fram. Þorsteinn Pálsson, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, veltir fyrir sér næstu ríkisstjórn Íslands í pistli í Fréttablaðinu í dag. Þar segir hann að Samfylkingin geti gengið inn í ríkisstjórnina sem nú er til staðar, í stað Vinstri grænna sem virðist vera að fjarlægjast...