Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Skyndilegur missir: „Sorg fjölskyldunnar viðurkennd óháð fjölskyldugerð“

Sorgarmiðstöðin.is
Sorg­ar­mið­stöðin.is

„Í dag fæ ég tækifæri til að flytja ávarp á ráðstefnu Sorgar­miðstöðvarinnar sem ber yfir­skriftina „Skyndi­legur missir“. Lengi vel þótti það mikill persónu­legur styrk­leiki að bera ekki tilfinningar sínar á torg. Það þótti allt að hetjulegt að harka bara af sér og bera harm sinn í hljóði – en harmurinn minnkaði ekkert við það.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnu­markaðs­ráðherra sendi frá sér pistil á Vísi þar sem hann talar fyrir mikilvægi þess að nú sé búið að samþykkja lög um sorgar­leyfi.

„Sem betur fer þá erum við fæst á þessum stað lengur. Og, með samþykki laga um sorgar­leyfi í júní síðastliðnum, höfum við tryggt lagalegan rétt foreldra til þess að fá leyfi frá störfum í kjölfar barns­missis og þar með meira svigrúm til að vinna úr sorg sinni.

Guðmundur segir þetta sé stórt skref fyrir réttindi fólks á vinnu­markaði.

„Með sorgar­leyfinu gefst foreldrum einnig meira rými til að styðja eftir­lifandi systkin við að takast á sorg sína og breyttar aðstæður. Það að foreldrar geti tekið sér leyfi frá störfum og greiðslur komi til móts við tekjutap er einnig stórt skref fyrir réttindi fólks á vinnu­markaði og er líklegt til að draga úr líkum á því að fólk detti út af vinnu­markaði.“

Eins og fyrr segir voru lögin samþykkt í júní og taka gildi um áramót.

„Lögin taka gildi um áramót. Rétturinn til sorgar­leyfis verður sex mánuðir og greiðslur nema 80% af meðaltali heildar­launa, þó að hámarki 600.000 kr. á mánuði. Fólk utan vinnu­markaðar eða sem er í minna en 25% starfi fær sorgar­styrk, þar á meðal námsmenn. Það er líka gert ráð fyrir að foreldrar geti nýtt rétt sinn til sorgar­leyfis samhliða minnkuðu starfs­hlutfalli yfir lengra tímabil.

Eitt af því sem mér þykir sérstak­lega vænt um í lögunum er hvernig hugtakið foreldri er skilgreint, en það er gert með mun víðtækari hætti en í annarri löggjöf. Það geta því fleiri en tveir einstaklingar átt rétt á sorgar­leyfi og er þar um sjálf­stæðan rétt hvers foreldris að ræða. Þannig er sorg fjöl­skyldunnar í heild viðurkennd óháð fjölskyldu­gerð en með því er lögunum ætlað að koma til móts við fjöl­breytt fjölskyldu­mynstur í íslensku samfélagi.

Um leið og við fögnum nýjum lögum um sorgar­leyfi þá þarf að huga að næstu skrefum er varða aukin réttindi fólks vegna andláts nákominna. Er þar nærtækast að horfa til barna­fjölskyldna og er greiningar­vinna þess efnis þegar hafin í félags- og vinnu­markaðs­ráðuneytinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning