Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Helga Vala svarar Þorsteini Pálssyni fullum hálsi: „Réttlætismál og þarna stöndum við föstum fótum“

Helga Vala Helgadóttir.
Helga Vala Helga­dóttir.

Helga Vala Helga­dóttir þvertekur fyrir það að Samfylkingin hafi tekið ESB-aðild af dagskrá líkt og Þorsteinn Pálsson heldur fram.

Þorsteinn Pálsson, fyrrum ráðherra Sjálfstæðis­flokksins, veltir fyrir sér næstu ríkis­stjórn Íslands í pistli í Frétta­blaðinu í dag. Þar segir hann að Samfylkingin geti gengið inn í ríkis­stjórnina sem nú er til staðar, í stað Vinstri grænna sem virðist vera að fjar­lægjast ríkis­stjórnina, miðað við lands­fundinn sem haldinn var á dögunum. Segir hann meðal annars að svo virðist sem Samfylkingin ætli sér að kjósa Kristrúnu Frosta­dóttur sem nýjan leiðtoga flokksins. „Hún ætlar að sigla Samfylkingunni eftir nýju striki,“ segir Þorsteinn og bætir við að flokkurinn muni nú „tala um færri mál en áður.“ Á hann þá meðal annars við Evrópu­sambands­málið sem Samfylkingin hefur verið hvað þekktust fyrir frá stofnun.

„Sjálfstæðis­flokkurinn yrði þó væntanlega að gefa meira eftir í útgjöldum til heilbrigðis­mála. Á móti þyrfti hann ekki að hafa áhyggjur af sjávar­útvegs­málum, Evrópu­málum og stjórnar­skrá,“ skrifar Þorsteinn í pistlinum.

Helga Vala Helga­dóttir, formaður Samfylkingarinnar svaraði í morgun Þorsteini Pálssyni á Facebook-síðu sinni þar sem hún þvertekur fyrir það að flokkurinn hafi tekið ESB-aðild af dagskrá.

„Vegna orða (óskheita?) Þorsteins Pálssonar í frétta­blaðinu í dag þá get ég fullyrt að stefna Samfylkingarinnar er skýr hvort tveggja er varðar mikilvægi ESB aðildar sem og nýrrar stjórnar­skráar enda er það grund­völlur jöfnuðar og gagnsæis meðal annars er varðar nýtingu auðlinda okkar. Stefnan hefur verið samþykkt af flokks­fólki á Lands­fundi og hef ég engar hugmyndir heyrt um að breyta henni hjá grasrót flokksins. Við hófum, í ríkis­stjórn Jóhönnu, aðildar­umsókn að Evrópu­sambandinu, eitthvað sem flokkur Þorsteins gerði ekki að umræðu­efni í sínu skammlífa stjórnar­samstarfi árið 2017. Þá lögðum við í félagi við flokk Þorsteins á Alþingi fram þingmál síðasta vor um að fram færi þjóðar­atkvæða­greiðsla um ESB aðildina enda hefur hin nýja heimsmynd okkar eftir innrás Rússa í Úkraínu aukið nauðsyn Evrópu­samvinnu til muna. Þá var það formaður Samfylkingarinnar, Jóhanna Sigurðar­dóttir, sem hóf leiðangurinn um nýju stjórnar­skrána sem formaður flokks Þorsteins tók þátt í að koma í veg fyrir að yrði að veruleika með málþófi vikum saman í lok þess kjör­tímabils. Við í Samfylkingunni leggjum áherslu á nýja stjórnar­skrá en því miður hafa ekki allir flokkar á þingi eða í stjórnar­andstöðu verið jafn áhugasöm um það verk. Það er lykil­atriði að við eignumst nýja stjórnar­skrá sem miðar að íslenskum veruleika en ekki dönskum frá þarsíðustu öld. Ég skora á Þorstein að hvetja sinn flokk til dáða í þessum baráttu­málum okkar, þarna er framtíðin, þetta er réttlætismál og þarna stöndum við föstum fótum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning