Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Reykjavík slítur vinasambandi: „Gengur gegn öllum gildum borgarstjórnar“

Í morgun samþykkti Borgarráð einróma að slíta vina­borga­samstarfi við Moskvu. Frá árinu 2007 hefur samstarfs­samningur verið í gildi á milli borganna.

Borgar­stjóri átti fund með borgar­stjóra Lviv 20. apríl og sendi­herra Úkraínu á Íslandi  16. júní. Borgarstjóri hefur í framhaldi af umræðunnifundað með utan­ríkis­ráðherra  og utan­ríkis­ráðuneytið um málið sem gerir ekki athuga­semdir við tillögu um slit á vina­borgar­samstarfi, samkvæmt upplýsingum á vef Reykja­víkurborgar.

Borgar­stjórn sendi frá sér eftir­farandi einróma ályktun vegna innrásarinnar í Úkraínu þann 1. mars:

„Borgar­stjórn Reykja­víkur fordæmir harðlega innrás Sambands­lýðveldisins Rússlands í Úkraínu og lýsir samstöðu og stuðningi við fólkið í Úkraínu. Borgar­stjórn skorar á ríkis­stjórn Rússlands að draga hersveitir sínar til baka, lýsa yfir vopnahléi og koma á friði þegar í stað. Innrásin í Úkraínu er ólögleg og ómannúðleg – og með henni er friður í Evrópu rofinn. Borgar­stjórn lýsir samstöðu með Kyiv, Kharkiv, Kherson og öðrum úkraínskum borgum og landsvæðum sem nú sæta árásum. Jafnframt lýsir borgar­stjórn samstöðu með íbúum sem neyðast til að flýja heimili sín eða berjast varnar­baráttu við ofurefli. Innrás sem þessi gengur gegn öllum gildum borgar­stjórnar Reykja­víkur og hvetjum við því ríkis­stjórn Íslands og stjórnir vinaríkja til að taka á móti flótta­fólki og veita allan þann stuðning sem þarf til að hjálpa úkraínsku þjóðinni að komast í gegnum þessar hörmungar. Reykja­víkurborg mun ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum og lýsir sig tilbúna til að taka á móti fólki á flótta.“

Að ráðgjöf borgar­lögmanns verður leitað viðbragða borgar­stjórnar Moskvu áður en slit, á vina­borgar­samstarfi og ofan­greindum samningi, verða formlega orðin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning